Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynningarfundir um stefnumarkandi stjórnaráætlanir á Vesturlandi

Stjórnstöð ferðamála og ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) Fundir verða haldnir í Borgarnesi 20. september og í Grundarfirði 22. september. Allir velkomnir

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.

Á fundunum munu Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og þau Anna Katrín Einarsdóttir og Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem breski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.

Á Vesturlandi verða haldnir fundir á Hótel Borgarnesi þann 20. september kl. 14:00 og í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði þann 22. september kl. 9:00

Allir eru velkomnir og fara skráningar fram hér.