Flýtilyklar
Guesthouse Hvítá
Guesthouse Hvítá er staðsett í hjarta Borgarfjarðar, 20 km. frá Borgarnesi og býður upp á 8 herbergi með sameiginlegu baðherbergi. Velbúin íbúð fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig. Ein fjölskylduálmu með 3 svefnherbergjum og sérbaði, 4-6 manna fjölskylduherbergi með sérbaði, ísskáp og örbylgju. Tvö herbergi fyrir 2-4 með sérbaði.
Falleg fjallasýn er allt í kringum Guesthouse Hvítá og algjör kyrrð og friður.
Veitingastaður er á Hvítá og er opið júní, júlí og ágúst frá 18:30 til 21:00. Á veturnar er veitingahúsið opið eftir samkomulagi fyrir hópa.
Hvítárbakki 7
Guesthouse Hvítá - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Dagsferðir
Sturlureykirhorses / Visiting HorseFarm
Gistiheimili
Country Hótel Fossatún
Vetrarafþreying
Landbúnaðarsafn Íslands
Gistiheimili
Sýningar
Brugghús Steðja
Sundlaugar
Sundlaugin Kleppjárnsreykjum
Sumarhús
Oddsstaðir
Náttúrulegir baðstaðir
Krauma
Tjaldsvæði
Hverinn
Dagsferðir
Fjeldstedhestar.is
Aðrir
- Litla Drageyri
- 311 Borgarnes
- 697-9139
- Nes, Reykholtsdal
- 311 Borgarnes
- 435-1472, 893-3889
- Breiðabólstaður
- 320 Reykholt í Borgarfirði
- 897-9323
Náttúra
Tröllafossar
Fossa- og flúðasvæði í Grímsá. Óvenjufallegt útsýni og sjónarhorn á fjallatindinn, Skessuhorn. Á sumrin er algengt að sjá laxa stökkva upp fossana.
Í klettum við árbakkann er afar skýr tröllkonumynd.
Tröllagaður er í Fossatúni þar sem hægt er að fara í tröllaleiki og gömguferð þar sem hægt er að kynnast perósnunum úr sögunni Tryggðatröll eftir Steinar Berg.
Náttúra
Deildartunguhver
Deildartunguhver í Reykholtsdal, um 37 km frá Borgarnesi. Deildartunguhver er vatnsmesti hver Evrópu en hann er einnig líkt og Kleppjárnsreykjahver samheiti á nokkrum hverum sem í heildina ná yfir um 50 m svæði. Úr hverunum koma 180 l af u.þ.b. 100° heitu vatni á sekúndu og er mesta uppstreymið undan 5 m háum leirbakka sem nefndur er ýmist Hverahóll eða Laugarhóll. Hverinn er nálægt bænum Deildartungu og dregur nafn af honum. Hann er friðaður. Vatni úr hvernum er dælt til Borgarness og Akraness.
Náttúra
Stálpastaðaskógur
Stálpastaðaskógur er samnefndir 345 ha eyðijörð í Skorradal. Jörðin hefur verið í eigu Skógræktar Ríkisins frá 1951. Stálpastaðaskógur er fyrst og fermst dæmigerður timburskógur og hefur mikið fræðslugildi um ýmis atriði varðandi timburframleiðslu úr sitkagreni hér á Íslandi. Við stíga í þjóðskógum er að finna staura með símanúmerum. Þegar gengið er fram á slíkan staur er upplagt að taka upp símann, hringja í númerið sem gefið er upp á staurnum og hlusta á skemmtilega fróðleiksmola um skóginn lesna fyrir sig.
Náttúra
Skorradalur
Skorradalur er syðstur Borgarfjarðardala. Skorradalsvatn fyllir upp mestan hluta dalsins en undirlendið vestan þess er breitt og mýrlent. Lítið er þar um hefðbundinn búskap í dag en sumarbústöðum fer fjölgandi og skóglendi stækkar ár frá ári. Fitjar eru inns í dalnum (Hvanneyrarprestakall) og skógræktin að Stálpastöðum er í honum norðanverðum þar sem finna má fallegar gönguleiðir. Tjaldsvæðið Selsskógi er gróður- og skjólsælt tjaldsvæði rétt við Skorradalsvatn.
Saga og menning
Reykholt í Borgarfirði
Reykholt er einn merkasti sögustaður landsins. Frægast er Reykholt vegna búsetu Snorra Sturlusonar 1206-1241.
Í Reykholti er forn laug Snorralaug þar sem Snorri er talin hafa setið og hvílt sig frá skriftum.
Snorrastofa í Reykholti býður upp á sýningar, leiðsögn og fyrirlestra. Öflugt tónlistarlíf er í Reykholtskirkju. Sígild tónlist í sögulegu umhverfi - Reykholtshátíð er tónlistarhátíð sem haldin er í lok júlí ár hvert.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Reykholts www.snorrastofa.is
Eitt hótel er í Reykholti sjá frekari upplýsingar hér.
Saga og menning
Hvanneyri
Hvanneyri er stórbýli frá landnámstíma. Fyrstur ábúanda þar er talinn hafa verið Grímur háleyski en Hvanneyri er hluti af landnámsjörð Egils Skallagrímssonar.
Landbúnaðarskóli Íslands á Hvanneyri er reistur á gömlum grunni öflugrar rannsóknarstofnunar og tveggja gróinna menntastofnana á landbúnaðarsviði, Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Garðyrkjuskóla ríkisins. Landbúnaðarháskólinn tók til starfa í upphafi árs 2005. Skólahald á sér annars langa sögu á Hvanneyri en búnaðarskóli var stofnaður þar 1889 og 1947 var stofnuð 1947. Aðalmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands er á Hvanneyri. Megin viðfangsefni hans er nýting og verndun náttúruauðlinda á landi og bæði er boðið upp á háskólanám og starfsmenntanám.
Á staðnum er rekið eina Landbúnaðarsafn landsins auk þess sem þar má finna Ullarselið sem er einaf betri verslun landsins með ullar- og handverksvörur.
Í kringum Hvanneyri er verndarsvæði blesgæsar sem hefur viðkomu á túnum staðarins bæði vor og haust.
Sýningar
Brugghús Steðja
Gistiheimili
Vetrarafþreying
Landbúnaðarsafn Íslands
Upplýsingamiðstöðvar
Snorrastofa Reykholti
Handverk og hönnun
Ullarselið á Hvanneyri
Hótel
Fosshótel Reykholt
Tjaldsvæði
Hverinn
Dagsferðir
Sturlureykirhorses / Visiting HorseFarm
Gistiheimili
Country Hótel Fossatún
Gistiheimili
Náttúrulegir baðstaðir
Krauma
Veitingahús
Rock´n´Troll Kaffi
Aðrir
- Flókadalur
- 320 Reykholt í Borgarfirði
- 696-1544, 435-1565
- Grímsstaðir 2
- 320 Reykholt í Borgarfirði
- 858-2133
- Hvanneyrartorfa
- 311 Borgarnes
- 8213538