Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Þá mun ég gleðjast og gráta (Stykkishólmskirkja)

9. ágúst kl. 20:00-21:00

Þá mun ég gleðjast og gráta er lifandi viðburður þar sem tengsl raddarinnar, píanósins og klarínettunnar eru könnuð. Á efnisskránni eru sönglög og önnur verk eftir Franz Schubert og Robert Schumann. Sönglögin eru alla jafna samtal píanós og raddar, en klarínettan, sem oft er sögð það hljóðfæri sem líkist mannsröddinni hvað mest, mun taka þátt í samtalinu og brúa bilið á milli hljóðfæris og söngs sem blanda af hvoru tveggja.

 

 

Staðsetning

Stykkishólmskirkja