Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opnun Guðlaugar við Langasand á Akranesi

Laugin Guðlaug við Langasand á Akranesi var opnuð við hátíðlega athöfn þann 8. desember síðastliðinn.

Opnun Guðlaugar við Langasand

Laugin Guðlaug við Langasand á Akranesi var opnuð við hátíðlega athöfn kl. 14:00 þann 8. desember síðastliðinn þar sem Ragnar Baldvin Sæmundsson, formaður skipulags- og umhverfisráðs Akraness flutti opnunarræðu. Fjöldi fólks var viðstatt athöfnina en að henni lokið var gestum boðið að þiggja kaffi og konfekt á Aggapalli og meðlimir Sjóbaðsfélags Akraness vígðu laugina ásamt öðrum gestum.   

Guðlaug er steinsteypt mannvirki staðsett í brimvarnargarðinum við Langasand. Laugin er á þremur hæðum, en á efstu hæðinni er útsýnispallur og þar fyrir neðan er m.a. heit setlaug og sturtur. Á fyrstu hæðinni er vaðlaug. Framkvæmdir hófust í lok ágúst 2017 en upphaflega var gert ráð fyrir að verkinu myndi ljúka í lok júní á þessu ári.

 „Hug­mynd­in fyr­ir Guðlaugu kviknaði út­frá dæld­um sem mynd­ast um­hverf­is steina á sand­in­um, þannig mynd­ast litl­ar nátt­úru­leg­ar „laug­ar“ í flæðar­mál­inu. Þessa hug­mynd tók­um við svo áfram og formuðum mann­virki á þrem­ur stöll­um í sjóvarn­argarðinum sem hver og einn hverf­ist um stak­an stein líkt og á strönd­inni. Efst er út­sýn­ispall­ur sem vís­ar til skips­stafns, í miðjunni er laug­in sjálf sem nýt­ur út­sýn­is út á hafið og skjóls frá pall­in­um fyr­ir ofan, neðst er svo laug þar sem sjór­inn og vatnið frá laug­inni fyr­ir ofan bland­ast,“ seg­ir Hrólf­ur Karl Cela arki­tekt Guðlaug­ar í til­kynn­ingu.

„Guðlaug er frá­bær viðbót hér á Akra­nesi fyr­ir bæði heima­menn og gesti og eru við yf­ir­full af stolti að standa hér í dag að vígja laug­ina.  Guðlaug hef­ur verið á lista yfir þær fram­kvæmd­ir sem Akra­nes­kaupstaður hef­ur viljað fara í síðustu ár og var það því mik­il feng­ur fyr­ir okk­ur að fá 30 m.kr. styrk úr fram­kvæmda­sjóði ferðamannastaða til upp­bygg­ing­ar laug­ar­inn­ar ásamt 14 m.kr. styrk frá minn­ing­ar­sjóði um hjón­in á Bræðraparti,“ seg­ir Sæv­ar Freyr Þrá­ins­son bæj­ar­stjóri í til­kynn­ingu.

Í vetur verður Guðlaug opin alla miðviku­daga og föstu­daga milli kl. 16-20 og all­ar helg­ar milli kl. 10-14. Gjaldfrjálst verður í laugina til að byrja með og eru búningsklefar á staðnum.