Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Markaðsstofa Vesturlands (MSV)

Markaðsstofa Vesturlands

Markaðsstofa Vesturlands (MSV) vinnur að kynningu og markaðssetningu á Vesturlandi sem fjölbreyttum og nærandi áfangastað þar sem náttúra, menning, samfélög og upplifun mynda eina heild.

MSV starfar í samstarfi við fyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila á svæðinu og er hluti af sameiginlegu opinberu stoðkerfi ferðamála á Íslandi þar sem landshlutarnir vinna saman að kynningu Íslands og einstakra svæða fyrir innlenda og erlenda markaði.

Í starfi MSV er lögð áhersla á ábyrga kynningu og sjálfbæra þróun ferðamála þar sem gestir eru hvattir til að dvelja lengur, njóta fjölbreyttrar upplifunar og ferðast um allt Vesturland á eigin forsendum.

Markmiðið er að skapa jákvæða upplifun fyrir alla auk þess að styrkja fyrirtæki, samfélög og lífsgæði á Vesturlandi.

Samstarfsaðild að MSV

Samstarf við ferðaþjónustufyrirtæki með starfsemi á Vesturlandi 

Markaðsstofa Vesturlands ehf. (MSV) er samstarfsvettvangur til að vinna að ímynd, kynningu og markaðssetningu á áfangastaðnum Vesturlandi og því sem þar er í boði að sjá og upplifa. 

Starfsemi MSV byggir á stefnumótun sem unnin er og sett fram í Áfangastaðaáætlun Vesturlands með samtali íbúa, sveitarfélaga og fyrirtækja í ferðaþjónustu á Vesturlandi. 

Hlutverk Markaðsstofu Vesturlands er að halda utan um og sinna markaðsmálum og opinberri kynningu á áfangastaðnum Vesturlandi. 

Markaðsstofan er líka samstarfsvettvangur við hagaðila ferðaþjónustunnar á Vesturlandi hvað varðar markaðs- og kynningarmál. 

MSV starfar með markaðsstofum í öðrum landshlutum og er formlegur samstarfsaðili Íslandsstofu og Ferðamálastofu varðandi markaðssetningu og kynningu á Íslandi sem áfangastað. 

Hverjir geta gerst samstarfsaðilar MSV? 

  • Starfandi ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi 
  • Sveitarfélög á Vesturlandi og stofnanir þeirra 
  • Þjónustuaðilar sem sjá hag af viðskiptum við ferðafólk
  • Stuðnings- og hagaðilar að uppbyggingu ferðaþjónustu á Vesturlandi 

Samstarfsaðilasamningur  

Til að skrá sig í samstarf, smellið á viðeigandi hnapp hér að neðan:

Skráning gististaða 

Skráning veitingastaða 

Skráning afþreyingarþjónustu 

Önnur þjónusta

Áfangastaðaáætlun Vesturlands

Áfangastaðaáætlun er stefnumótandi aðgerðatengd áætlun varðandi áherslur, uppbyggingu og þróun ferðamála á tilteknu landsvæði á ákveðnu tímabili. Áætlunin er gerð að frumkvæði og samkvæmt stefnu stjórnvalda um þróun ferðamála á landsvísu, en er unnin af stoðþjónustu ferðamála á umræddu svæði, í samstarfi við sveitarfélög, heimafólk og hagaðila á hverju svæði. 

Áfangastaðaætlun stuðlar að jákvæðum framgangi ferðamála, samræmdri uppbyggingu innviða og virkri vöruþróun, en  er einnig góður grunnur að aukinni samkennd, samráði og samstarfi allra hagaðila ferðamála á Vesturlandi. 

Fyrsta Áfangastaðaáætlun Vesturlands kom út í upphafi árs 2019 (ÁSÁ.Vest. 2018-2020). Þar er ýtarleg greining á sérstöðu svæðisins og þróun ferðamála í landshlutanum. Sú greining stendur enn vel fyrir sínu, því er hún nýtt áfram sem grunnurinn að annarri áfangastaðaáætlun Vesturlands sem unnin var og gefin var út í upphafi árs 2021, og er leiðarljós varðandi þróun og uppbyggingu ferðamála á Vesturlandi árin 2021-2025.

Áfangastaðastofa Vesturlands

Í framhaldi af gerð Áfangastaðaáætlunar Vesturlands 2018-2020 og stefnumótun stjórnvalda um að efla samræmda og markvissa áfangastaðavinnu um allt land, voru stofnaðar Áfangastaðastofur í hverjum landshluta. 

Hlutverk áfangastaðastofu er að halda utan um gerð og framgang áfangastaðaáætlunar hvers svæðisins í samráði við heimafólk og hagaðila ferðamála.  

Áfangastaðastofa Vesturlands (ÁSV) vinnur að fjölbreyttum verkefnum sem byggja á áherslum og markmiðum í gildandi Áfangastaðaáætlun Vesturlands á hverjum tíma – auk þess að taka mið af áherslum sem settar eru fram í fjármögnunar-samningi við Ferðamálaráðuneytið s.s.;  

  • Vera grunneining í stoðkerfi ferðamála í landshlutunum  
  • Gerð og framkvæmd áfangastaðaáætlana ásamt tengingu við aðrar opinberar stefnur og áætlanir 
  • Aðkoma að gerð stefnumótunar og áætlana á landsvísu sem snertir ferðaþjónustu 
  • Aðkoma að þarfagreiningu rannsókna og mælinga á landsvísu  
  • Stuðla að og styðja við vöruþróun og nýsköpun í ferðamálum og vinna að vinna að þróunarverkefnum  
  • Leggja mat á fræðsluþörf, veita ráðgjöf varðandi fræðslu og miðla upplýsingum um hvað er í boði  
  • Liðsinna sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum innan svæðis vegna ferðaþjónustu  
  • Sinna svæðisbundinni markaðssetningu og kynningu í samstarfi við sveitarfélög og ferðaþjónustuaðila sem dregur fram sérstöðu landshlutanna og styður við markaðssetningu Íslands í heild.

Leiðbeiningar og vinnuskjöl

 

Hér má nálgast myndbönd þar sem farið er yfir skráningar nýrra samstarfsaðila á vefinn: 

Skráning gististaða

Skráning veitingahúsa

Skráning afþreyingar

 

Eftirfarandi hnappur leiðir þig í leiðbeininga- og vinnuskjöl fyrir umsóknarvinnu í Framkvæmdarsjóð ferðamannastaða:

Umsókn í Framkvæmdarsjóð ferðamannastaða