Verkefni Markaðsstofu Vesturlands
MSV tekur þátt í verkefnum sem styðja við uppbyggingu, upplifun og sjálfbæra þróun ferðamála á Vesturlandi.
Móttaka skemmtiferðaskipa
Markmið verkefnisins var að greina áhrif aukins fjölda gesta, sérstaklega skipafarþega og hópferðafólks, og finna leiðir til að taka á móti þeim á sjálfbæran og ábyrgan hátt.

Silfurhringurinn
Verkefnið miðar að því að þróa Silfurhringinn sem sterkan, sjálfbæran og aðgengilegan áfangastað fyrir ferðamenn á Íslandi allt árið.
Gönguleiðaverkefni Vesturlands
Markmið verkefnisins er að bæta yfirsýn, öryggi og gæði upplýsinga um gönguleiðir, styðja við vernd náttúru og skapa grunn fyrir markvissari uppbyggingu og stýringu ferðamennsku.

Áfangastaðaáætlun
Markmið áfangastaðaáætlunar er að móta sameiginlega sýn á framtíð ferðamála á svæðinu. Hún setur fram samræmdar áherslur varðandi stýringu, skipulag og stefnu um þróun ferðamála og uppbyggingu innviða.

Borðkort
Markaðsstofa Vesturlands gefur út borðkort með yfirlitsmynd af öllu Vesturlandi þar sem áhugaverðir staðir og aðgengilegir áningarstaðir eru merktir inn.

