Fara í efni

Úrval dagsferða er nánast ótæmandi og þær geta verið hentugur kostur.

Húsafell Giljaböð
Húsafell Giljaböð bjóða upp á ferðir með leiðsögn í fullkomna hálendisslökun í einstökum giljaböðum. Ferðin hefst í afþreyingarmiðstöðinni Húsafelli þaðan sem ekið er að Deildargili. Á leiðinni fræðumst við meðal annars lítillega um endurnýjanlega orku og förum yfir bráðnandi jökulvatn úr jöklinum Ok, fyrsta íslensk jöklinum sem orðið hefur loftslagsbreytingum að bráð. Gengið er upp með Deildargili að útsýnispalli sem gefur fallegt sjónarhorn á Langafoss. Þaðan er farið um fallegan skógarstíg að Hringsgili þar sem gengið er niður tröppur að böðunum. Þar gefst gestum tækifæri á að skipta um föt og fara í pottana. Að því loknu er haldið til baka að Húsafelli.  Ferðin tekur tæpar tvær klukkustundir. Gengið er um 1,5 km. Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.
Fjeldstedhestar.is
1-2 tíma hestaleiguferðir í fallegu umhverfi á bökkum Hvítár sem er jökul á sem kemur úr Eiríksjökli. Góð aðstaða í nýrri reiðskemmu sem er sér hönnuð fyrir falaða og hreyfihamlaða. Hesta við allra hæfi. Einnig reiðskóla sem eru 5 daga námskeið fyrir börn og unglinga yfir sumar tímann, frá mánudegi til föstudags. Nánari upplýsingar gunna@fjeldstedhestar.iswww.fjeldstedhestar.is
Iceland Exclusive Travels ehf.
Iceland Exclusive Travels Býður fólk velkomið vestur í hjarta Íslands. Við bjóðum upp á blandaðar og prívat ferðir fyrir litla hópa frá Reykjavík sem sniðnar eru að þörfum sælkera. Við heimsækjum Borgafjörð skoðum Hraunfossa og Deildartunguhver sem er aflmesti hver Evrópu. Við gistum í einstaklega fallegum burstabæ sem er staðsettur í miðju Hallmundarhrauni með útsýni til Eiríksjökuls Langjökuls og að Oki. Í boði eru sex gestaherbergi sem öll eru með sérinngangi og sér salernisaðstöðu. Gott er að dýfa sér í heita pottinn eða ylja sér við skjólgott eldstæði og njóta norðurljósa eða miðnætursólarinnar.  Í næsta nágrenni er meðal annars Húsafell, ísgöngin í Langjökli, Víðgelmir og Krauma spa. Það er hentar líka mjög vel að keyra gullhringinn á leiðinni vestur frá Reykjavík. Markmið okkar er að bjóða gestum okkar upp á fræbæra upplifun, með því að blanda saman þægindum, afþreyingu og frábæru útsýni. Smellið hér Heart of Iceland tour fyrir frekari upplýsingar og til að bóka ferðir eða kynnið ykkur prívat ferðirnar okkar hér 2 daga ferð, 3 daga ferð, Your trip Iceland.
Loa Tours
Loa Tours á Snæfellsnesi býður upp á dagsferðir fylltar upplifunum og dekri. Komdu í gönguferð í stórbrotinni náttúru Snæfellsness þar sem fararstjóri segir frá þjóðsögum og kennileitum. Gæddu þér á veitingum úr hágæða hráefni úr nærumhverfinu, úti undir berum himni. Staldraðu við og njóttu augnabliksins. Eftir göngu og útiveru læturðu svo líða úr þér í heitri laug og endar svo daginn á kokteil og þriggja rétta máltíð á einum af margrómuðu veitingastöðum Snæfellsness. Allt þetta og meira til, er innifalið í verðinu. 
Vestur Adventures
Skipulagðar kayak ferðir við Kirkjufell og nágrenni er mögnuð upplifun. Þú munt upplifa óspillta nátúru, fuglalíf og fræðast um sögu staðarins. Einnig eru miklar líkur á að forvitnir selir verði á leið okkar. Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.
Gufuá
Við bjóðum uppá tvenns konar upplifanir utandyra, þar sem þú kynnist mismunandi hliðum á sveitinni okkar fallegu. Annars vegar er það hið sívinsæla Geitalabb með hobbitageitunum Gandálfi, Fróða og félögum. Geitalabbið er sérstaklega skemmtileg klukkustundar upplifun fyrir einstaklinga og hópa sem langar að hitta búsmalann og prófa eitthvað allt öðruvísi. Hins vegar er svo Náttúruganga með sagnaþul um vörðuslóðir landnámsjarðarinnar Gufár, þar sem náttúrufar, saga og sérkenni svæðisins eru skoðuð og ábúendur fyrr og nú kynntir til sögunnar. 2ja klst. ganga á þægilegum gönguhraða, hugsað fyrir hópa. Einstaklega skemmtileg og fróðlega afþreyging þar sem bóndi opnar dyrnar að býli sínu. Upplifun í anda Meet the locals. Við bjóðum uppá tvær mismunandi upplifanir: Geitalabb - Lesa meira   Náttúruganga með sagnaþul - Lesa meira 
Sturlureykirhorses / Visiting HorseFarm
Hestarnir á Sturlureykjum taka vel á móti gestum og elska alla athygli enda eru þeir partur af fjölskyldunni, fædd að Sturlureykjum, ræktuð, tamin og þjálfuð af heimilisfólki. Heita vatnið skipar stóran sess í sögu Sturlureykja, en þar er fyrsta hitaveita í Evrópu og geta gestir kynnt sér sögu hitaveitunnar og skoðað heitan náttúruhver. Í boði er: Hestaleiga/Hestaferðir; Markmið okkar eru góð hross og persónuleg þjónusta, gestir geta valið sér tíma með því að hafa samband eða mætt á staðinn, í boði alla daga allt árið um kring. Heimsókn í Hesthús; Tekið á móti gestum í kaffistofunni, farið og kíkt á hestana, "Hestaselfie" er skemmtileg og ógleymanleg minning :) Skoðum heita hverinn og endað í kaffistofunni þar sem boðið er upp á kaffi, te, heitt súkkulaði og Hverarúgbrauð sem bakað er á staðnum Opið daglega frá 10:00 til 16:00.
Thor Photography
Thor Photography býður einstaklingum og hópum upp á ferðir og námskeið þar sem megináhersla er lögð á ljósmyndun og viðföngin eru helstu perlur íslenskrar náttúru. Lagt er upp úr því að velja staðsetningu sem hentar skilyrðum hverju sinni, og veita kennslu varðandi stillingar á myndavélum, hvernig skal ramma inn myndefnið, val á linsum og veita ráð og kennslu varðandi myndvinnslu og fleira.
Guide to Iceland
Guide to Iceland er íslenskt markaðstorg sem sameinar yfir 1500 íslenska ferðaþjónustuaðila. Á heimasíðunni okkar finnur þú allar upplýsingar um ferðir, bílaleigur og afþreyingu sem henta þínum þörfum. Við búum yfir 9 ára reynslu og leggjum metnað í að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og að upplifun viðskiptavina sé ætíð höfð í fyrirrúmi.   Guide to Iceland hefur hlotið verðlaunin Iceland’s Leading Travel Agency frá World Travel Awards 4 ár í röð, frá 2018-2021. Guide to Iceland hefur einnig hlotið verðlaunin Iceland’s Leading Destination Management Company frá World Travel Awards 2 ár í röð, 2020 og 2021. 
Dalahestar
Dalahestar er lítið fjölskyldu rekið fyrirtæki sem bíður upp á sérsniðna reiðtúra í fallegu nærumhverfi Hvammsfjarðar. Við bjóðum einstaklingum og litlum hópum að upplifa einstaka náttúru og útsýni.  Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana. 
The Cave
Víðgelmir er stærsti hraunhellir landsins. 1.600 metra langur hellirinn býr yfir mögnuðum litaafbrigðum og hraunmyndunum djúpt í iðrum jarðar og með sínum framúrskarandi fjölbreytileika og glæsileika býður hann upp á ógleymanlega lífsreynslu.  Við bjóðum upp á fjölskylduvænar ferðir sem allar kynslóðir geta notið, þökk sé nýrri göngubrú og lýsingu í hellinum. Fyrir þá sem kjósa meiri áskorun, þá bjóðum við einnig upp á hálfs dags ferð alveg inn í enda hellisins, út fyrir manngerð þægindi. Hellar eru oft dimmir og þröngir en það á ekki við um Víðgelmi. Það sem áður var seinfarið, harðgert landslag er nú auðvelt og skemmtilegt yfirferðar. 
Into the glacier ehf.
Into The Glacier bíður upp á ferðir í stærstu manngerðu ísgöng í heiminum. Í ferðinni er farið frá Húsafelli upp á Langjökul þar sem göngin eru staðsett í 2200 metra hæð yfir sjávarmáli. Ógleymanleg lífsreynsla í íslenskri náttúru.
Crisscross Matarferðir
Crisscross sér um og skipuleggur matarferðir um Vesturland þar sem tvinnað er saman matar- og náttúruupplifun. Við ferðumst í litlum hópum og bjóðum upp á persónulega upplifun af landi, mannlífi og fjölbreyttri matarmenningu. Í ferðum okkar er farið í heimsóknir á bóndabæi, á veitingahús og til smáframleiðenda matvæla, fræðst um sögu og landnytjar og bragðað á afurðum af svæðinu. Fyrir hópa bjóðum við upp á styttri og lengri sælkeraferðir sem í samráði er hægt er að aðlaga að óskum og áhugasviði hvers hóps fyrir sig.
Horse Centre Borgartún
Hestamiðstöðin Borgartún býður upp á 1-2 klst. reiðtúra í fallegu umhverfi í útjaðri Akranes. Reiðtúrarnir okkar eru dásamleg upplifun fyrir alla þá sem langar að prufa íslenska hestinn. Hvort sem þið eruð með eða án reynslu, ung eða gömul, þá eru þessir vinalegu og lipru hestar auðveldir í meðhöndlun og skemmtilegir í þeirra náttúrulega umhverfi. Við sérhæfum okkur í minni hópum með persónlegri þjónustu og erum opin allan ársins hring. Þegar veðrið er okkur ekki hliðhollt, þá er alltaf hægt að fara á hestbak innandyra (reiðhöll).
Kontiki
Kontiki bíður uppá stuttar kayakferðir frá Stykkishólmi á Snæfellsnesi. Okkar aðal áherslur eru vistvæn ferðamennska með litla hópa í hvert skipti til að upplifa magnaða náttúru Breiðafjarðar. Þessi tveggja klukkustunda kajaksigling er hið fullkomna tækifæri til að kanna íslenska náttúru eins og hún gerist best og uppgötva kyrrð eyjalífsins. - hreint út sagt ómissandi fyrir náttúrubörn með ævintýraþrá sem langar að skoða Breiðafjörð. Þátttakendur fá byrjendakennslu í kajaksiglingum sem sniðin er að þörfum hvers og eins. Að því loknu halda þátttakendur ásamt leiðsögumanni í leit að lundum, selum og skipsflökum um leið og þeir fræðast um hina heillandi sögu og jarðfræði Snæfellsness.

Aðrir (40)

Heimskauts skoðun slf. 869-1431
Kraftganga Lækjargata 4 101 Reykjavík 899-8199
Kynnisferðir - Reykjavik Excursions BSÍ Bus Terminal 101 Reykjavík 580-5400
Bjarni Þorsteinsson 101 Reykjavík 899-7298
Tour Desk Lækjartorg 5 101 Reykjavík 5534321
Iceland Unlimited ehf. Borgartún 27 105 Reykjavík 415-0600
Þín leið 105 Reykjavík 899-8588
Iceland Untouched Meistaravellir 11 107 Reykjavík 696-0171
Hey Iceland Síðumúli 2 108 Reykjavík 570-2700
Safaris ehf. Selásblettur 18a 110 Reykjavík 822-0022
Boreal Austurberg 20 111 Reykjavík 8646489
Absorb Iceland Rósarimi 1 112 Reykjavík 695-5566
Guðmundur Jónasson ehf. Vesturvör 34 200 Kópavogur 5205200
FishIceland.com Lundur 11, íbúð 503 200 Kópavogur 899-4247
Arctic Exposure Skemmuvegur 12 (blá gata) 200 Kópavogur 617-4550
Season Tours Fífuhjalli 19 200 Kópavogur 8634592
Arctic Advanced Rjúpnasalir 10 201 Kópavogur 777-9966
Adventure Patrol sf. Flesjakór 13 203 Kópavogur 666-4700
This is Iceland Hvaleyrarbraut 24 220 Hafnarfjörður 8985689
Iceland is Hot ehf. / Come to Iceland Norðurvangur 44 220 Hafnarfjörður 775-0725
Dogsledding Iceland Þingvallasvæðið, Mosfellsbær 271 Mosfellsbær 8636733
Taxi-Ice - Ari Grétar Björnsson Brekkubraut 8 300 Akranes 770-6644
EvTaxi Háteigur 3 300 Akranes 7903838
Ísland Treasures / Menopause Morph Skagabraut 25 300 Akranes 824 1640
Hundasledaskoli Skridhusky - 301 Akranes 7778088
Sæmundur Sigmundsson Brákarbraut 20 310 Borgarnes 437-1333
Hvítá travel Þórólfsgata 12 310 Borgarnes 661-7173
Iceland By Horse Litla Drageyri 311 Borgarnes 697-9139
Þóra Sif Kópsdóttir Ystu-Garðar 311 Borgarnes 845-6647
Hawk The Beard Tours Sóltún 4 311 Borgarnes 845-3637
Karólína Hulda Guðmundsdóttir Fitjar, Skorradalur 311 Borgarnes 893-2789
Matur, saga og menning í Stykkishólmi / Gönguferðir í Stykkishólmi / Gönguleiðsögn á Snæfellsnesi Nesvegur 13 340 Stykkishólmur 534-2120
Ocean Adventures Höfnin Stykkishólmi / Stykkishólmur Harbour 340 Stykkishólmur 8982028
Stykkishólmur Slowly ehf. Hafnargata 4 340 Stykkishólmur 766-0996
Snæfellsnes Park Excursions & Activities Sólvellir 5 350 Grundarfjörður 866-2552
Brimhestar Brimilsvellir 356 Snæfellsbær 436-1533
Healing Moon Tvíoddi 356 Snæfellsbær 6998523
Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir Böðvarsholt 356 Snæfellsbær 867-4451
Sögufylgja Álftavatn 356 Snæfellsbær 848-2339
Sveinn Kjartan Gestsson Staðarfell 371 Búðardalur 893-6633