Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Markaðsstarf fyrir Vesturlands

MSV vinnur í samstarfi við fyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila að þróun og kynningu á Vesturlandi.

Með virku samstarfi og upplýsingaflæði skapast sterkari grunnur fyrir sjálfbæra og nærandi þróun ferðamála á Vesturlandi þar sem hagsmunir samfélaga, fyrirtækja og gesta fara saman.

Markaðsstofa Vesturlands kemur að fjölbreyttum verkefnum og viðburðum sem styðja við þróun ferðaþjónustu á svæðinu, meðal annars með fræðslufundum, námskeiðum, málþingum og verkefnum á sviði vöruþróunar. Samstarfsaðilar fá jafnframt aðgang að ráðgjöf og samtali við starfsfólk MSV um nýsköpun, markaðssetningu, styrkumsóknir og önnur þróunarmál. Með sameiginlegu átaki er unnið að því að efla gæði, upplifun og sérstöðu Vesturlands sem áfangastaðar.