Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hvernig virkar opinbert markaðsstarf fyrir Vesturland og Ísland?

Kynning á Íslandi sem áfangastað byggir á samstarfi ríkisaðila, landshluta og fyrirtækja í ferðaþjónustu.

Íslandsstofa leiðir alþjóðlega kynningu á Íslandi í gegnum Visit Iceland, en markaðsstofur landshlutanna vinna að kynningu hvers svæðis og tengja saman upplýsingar, verkefni og samstarf innan sinna landshluta.

MSV vinnur að því að vekja áhuga á Vesturlandi sem áfangastað þar sem hægt er að dvelja, njóta og upplifa fjölbreytta náttúru, menningu, mat, sögu og samfélög um allt svæðið.

Í kynningarstarfi MSV er lögð áhersla á ábyrga kynningu sem styður við sjálfbæra þróun ferðamála á Vesturlandi.

Markmiðið er að hvetja gesti til að:

  • dvelja lengur á svæðinu
  • ferðast um fleiri svæði Vesturlands
  • njóta fjölbreyttrar upplifunar
  • heimsækja staði sem eru undir það búnir að taka á móti gestum og umferð

Þannig er unnið að því að skapa ábata bæði fyrir gesti, fyrirtæki og samfélög á Vesturlandi.

Visit Iceland og alþjóðleg kynning

Íslandsstofa leiðir alþjóðlega kynningu Íslands sem áfangastaðar og vinnur með markaðsstofum landshlutanna að sameiginlegri framsetningu landsins á erlendum mörkuðum.

Markaðsstofa Vesturlands (MSV) tengir Vesturland við þetta sameiginlega markaðsstarf og vinnur að því að kynna svæðið fyrir bæði innlendum og erlendum gestum.

Vesturland er kynnt sem hluti af heildarupplifun Íslands þar sem áhersla er lögð á náttúru, menningu, afþreyingu og fjölbreytta upplifun allt árið um kring.

Kynningarvefir Vesturlands

west.is

westiceland.is

vesturland.is

samfélagsmiðlar

Ferðalag.is og innanlandsmarkaður

Ferðamálastofa leiðir innanlandskynningu ferðamála á Íslandi og vinnur að því að hvetja Íslendinga til að ferðast um landið allt árið um kring. Verkefnið Ferðalag.is er hluti af þeirri kynningu og miðlar upplýsingum, hugmyndum og innblæstri fyrir íslenska ferðamenn. Markaðsstofa Vesturlands (MSV) tekur þátt í innanlandskynningu með því að kynna Vesturland fyrir íslenskum markhópum í gegnum vefi, samfélagsmiðla, herferðir og samstarfsverkefni. Áhersla er lögð á að veita aðgengilegar upplýsingar um áfangastaði, viðburði, þjónustu og upplifun á Vesturlandi og hvetja fleiri til að ferðast innanlands og upplifa fjölbreytni svæðisins.