Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hvað gerir MSV í framkvæmd?

Frá kynningarvefjum og samfélagsmiðlum til ferðasýninga, þróunarverkefna og áfangastaðastjórnunar – MSV vinnur að því að styrkja Vesturland sem eftirsóknarverðan og sjálfbæran áfangastað.

Breiðafjörður

Kynningarvefir og netmiðlar

MSV heldur utan um opinbera kynningarvefi Vesturlands og samfélagsmiðla sem miðla upplýsingum um áfangastaðinn Vesturland til ferðafólks innanlands og erlendis.

 

 

Lesa nánar

 

 

Drangar á Ströndum

Ferðasýningar og vinnustofur

MSV tekur þátt í ferðasýningum, vinnustofum og kynningarverkefnum innanlands og erlendis til að vekja áhuga á Vesturlandi og skapa tækifæri fyrir fyrirtæki og samfélög á svæðinu.

 
Drangar á Ströndum

Mannamót

MSV tekur þátt í Mannamótum markaðsstofa landshlutanna þar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu á landsbyggðunum koma til höfuðborgarinnar og halda sameiginlega ferðasýningu til að kynna starfsemi sína fyrir ferðaskrifstofum og öðrum hagaðilum.

Lesa nánar

 

Drangar á Ströndum

Kynningar- og blaðamannaferðir

MSV tekur þátt í skipulagningu og gestamóttöku í kynningarferðum fyrir ferðaskrifstofur, áhrifavalda og blaðamenn sem vilja kynna sér og leggja áherslu á upplifun, staðaranda og fjölbreytni Vesturlands sem nærandi áfangastaðar.

Lesa nánar
Drangar á Ströndum

Samstarf og samráð

MSV vinnur með fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum hagaðilum að þróun áfangastaðarins, kynningu og markaðssetningu ferðamála á Vesturlandi.

Lesa nánar

 

Drangar á Ströndum

Þróunarverkefni og ferðaleiðir

MSV tekur þátt í verkefnum sem styðja við uppbyggingu, upplifun og sjálfbæra þróun ferðamála á Vesturlandi.