Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skráning er hafin á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2020

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 12:00 – 17:00 í Kórnum í Kópavogi.

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 12:00 – 17:00 í Kórnum í Kópavogi.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu.

Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpar til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamóti gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða upp á, með áherslu á vetrarferðamennsku.

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.

Skráningu lýkur þann 31. desember 2019. Verð 19.000+ vsk.

Nánari upplýsingar hér!

Skráning sýnenda hér!

Skráning gesta hér!