Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Niðurstöður kynntar á opnum fundi 30. maí - Móttaka skemmtiferðaskipa og farþega á Snæfellsnesi

Þann 30. maí kl. 16:30 í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi verður opinn fundur þar sem helstu niðurstöður úr verkefnavinnu og helstu áherslur heimamanna verða kynntar í verkefninu MÓTTAKA SKEMMTIFERÐASKIPA OG SKIPAFARÞEGA Á SNÆFELLSNESI

Stóra sprettverkefni Áfangastaða- og Markaðssviðs SSV á vorönn 2023 hefur verið að vinna með heimafólki að gerð staðbundinna leiðbeininga fyrir skemmtiferðaskip og skipafarþega á Snæfellsnesi. Nú er komið að því að kynna niðurstöður úr verkefninu og verður það gert í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi kl. 16:30 þriðjudaginn 30. maí

Nánar um verkefnið:

Þetta verkefni er unnið í samstarfi við Sveitarfélagið Stykkishólm, Grundarfjarðarbæ, Snæfellsbæ, Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, Svæðisgarðinn Snæfellsnes og AECO (The Association of Arctic Expedition Cruise Operators – sjá: https://www.aeco.no/). Einnig veitir Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI aðstoð og ráðgjöf.

Markmiðið með verkefninu er að stilla saman strengi og leggja línurnar um hvernig heimafólk á Snæfellsnesi vill taka á móti farþegum skemmtiferðaskipa sem heimsækja svæðið, þannig að einstaka staðir verði ekki fyrir of miklu álagi, gestirnir njóti heimsóknarinnar og samfélagið njóti ávinnings af gestamóttökunni.

Helsta áskorun verkefnisins er að gera stöðugreiningu og kynna sérstöðu svæðisins, vilja og væntingar heimafólks fyrir hagaðilum skemmtiferðaskipa. En einnig að kynna eðli og áherslur í skipaferðaþjónustu fyrir heimafólki og skilgreina tækifæri sem felast í móttöku skipafarþega.

Einnig er mjög mikilvægt að skerpa á tengingum og mikilvægi gagnvirkrar upplýsingagjafar, samskipta og samstarfs milli ferðaskipuleggjenda og hagaðila ferðamála á Snæfellsnesi.

Viðfangsefnið er að sammælast um staðbundnar leiðbeiningar og leiðarljós í þessari ferðaþjónustu og gestamóttöku skemmtiferðaskipa og skipafarþega sem bæði fyrirtækin, heimamenn og gestir geta fylgt sáttir.

Svipað verkefni var unnið sem sprettverkefni Á&M á vorönn 2022 þegar „leiðbeiningar / community guidelines“ fyrir móttöku skemmtiferðaskipa og skipafarþega voru mótaðar með heimafólki á Akranesi í samstarfi við AECO. Afrakstur þeirra vinnu má sjá hér: https://www.aeco.no/guidelines/community-guidelines/akranes-community-guidelines/

Verkefnið sem nú er unnið að á Snæfellsnesi er þó öllu umfangsmeira en verkefnið í fyrra, þar sem það eru fleiri sveitarfélög og samstarfsaðilar í þessu verkefni, stærra landsvæði og fleiri hagaðilar sem unnið er með, og fleiri skemmtiferðaskip sem heimsækja svæðið nú þegar.

Það er því að mjög mörgu að hyggja í þessu verkefni og mjög mikilvægt að tryggja virka þátttöku heimafólks til að fá fram árangursríka vinnu og niðurstöðu á öllum svæðum.

Hér má sjá kynningu verkefnisins í heild sinni - Glærukynning fyrir verkefnið í heild sinni

Kynningar- og vinnufundur haldinn í Grundarfirði 28. mars 2023

Móttaka skemmtiferðaskipa og skipafarþega á Snæfellsnesi - Kynning í Grundarfirði - Margrét Björk kynnir verkefnið (myndband)

↓Smellið á hnappinn hér að neðan til að sjá meira um fundinn í Grundarfirði↓

Kynningar- og vinnufundur 28.03.2023

Kynningar- og vinnufundur haldinn í Stykkishólmi 25. apríl 2023

Móttaka skemmtiferðaskipa og skipafarþega á Snæfellsnesi - Kynning í Stykkishólmi

↓Smellið á hnappinn hér að neðan til að sjá meira um fundinn í Stykkishólmi↓

Kynningar- og vinnufundur 25.04.2023

 

15.-17 maí voru haldnir 90. mín. vinnufundir á hverju þjónustusvæði á Snæfellsnesi þar sem þátttakendur settu saman tillögur um hvert best er að vísa hópum á hverju svæði fyrir sig – þessi vinna er grunnur að leiðarvísi fyrir ferðaskipuleggjendur og fararstjóra að velja þá staði þar sem aðstaða er til staðar og gott er að koma með hópa.

Allir áhugasamir fulltrúar sveitarfélaga, hagaðilar og íbúar á hverju svæði voru hvattir til að skrá sig og taka þátt í vinnunni á þeim fundi sem haldinn var á þeirra svæði.

STUND OG STAÐUR:

  • 15. maí – kl. 17:00-18:30 - SAMKOMUHÚSIÐ ARNARSTAPA
  • 16. maí – kl. 13:30-15:00 - SJÓMINJASAFNIÐ HELLISSANDI
  • 16. maí – kl. 17:00-18:30 - SÖGUMIÐSTÖÐIN GRUNDARFIRÐI
  • 17. maí – kl. 17:00-18:30 - AMTSBÓKASAFNIÐ STYKKISHÓLMI

VIÐFANGSEFNI FUNDARINS (vinnusmiðja þátttakenda)

  • HVERT VILJA HEIMAMENN VÍSA HÓPUM
  • HVAR ER ÞJÓNUSTA Í BOÐI FYRIR HÓPA
  • HVAR ERU ÁNINGARSTAÐIR MEÐ GÓÐU AÐGENGI OG INNVIÐUM FYRIR HÓPA

 

Stöðugreiningar - Niðurstöður úr könnunum og öðrum greiningum