Fara í efni

Ferðasvæðin fjögur

Vesturlandi er skipt í fjögur ferðasvæði sem hvert um sig hefur sína sérstöðu hvað varðar náttúrufar, landslag, byggð, atvinnulíf, sögu og menningu.

Svæðaskiptingin tekur mið af landfræðilegum aðstæðum, tengslum byggðarlaga og samlegð atvinnusvæða, en aðallega byggir hún á möguleikum til að þróa ferðaleiðir með góðu aðgengi og fjölbreyttri upplifun og þjónustu fyrir gesti. Þessi svæðisskipting er því mikilvægur grunnur að samstarfi sveitarfélaga og annarra hagaðila um þróun ferðamála, uppbyggingu innviða, mótun ferðapakka og miðlun upplýsinga.

Hvalfjörður og Akranes

Hvalfjarðarsvæðið einkennist af samspili sjávar, fjalla, sveitabyggða og þéttbýlis á Akranesi. Nálægð við höfuðborgarsvæðið, fjölbreytt atvinnulíf og söguleg tengsl við sjávarútveg, iðnað og landbúnað móta sérstöðu svæðisins auk þess sem saga svæðisins skapar mörg tækifæri.

Á svæðinu eru Akranes, Hvalfjarðarsveit og Kjósarhreppur.

Borgarfjörður

Borgarfjörður einkennist af víðáttumiklum sveitum, ám, jarðhita, hraunum og fjalllendi sem nær inn að hálendinu. Svæðið á sér ríka sögu sem tengist landnámi, Íslendingasögum, menntun og menningarstarfsemi. Borgarnes er mikilvægur þjónustukjarni og samgöngumiðstöð svæðisins.

Svæðið nær yfir Borgarfjarðarhérað og Borgarnes.

Snæfellsnes

Snæfellsnes einkennist af fjölbreyttu landslagi þar sem eldfjöll, hraun, fjöll, firðir og fjölbreyttar strandir mynda sérstæða heild. Snæfellsjökull er eitt helsta kennileiti svæðisins og þjóðgarðurinn umhverfis hann er mikilvægur þáttur í náttúruvernd og upplifun gesta. Sjávarbyggðir, útgerðarsaga, sögu- og menningararfur móta jafnframt sérstöðu svæðisins.

Svæðið nær yfir öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi og þorpin sem þar eru.

Dalir

Dalir einkennast af víðáttumiklu sveitalandslagi, dölum, fjörðum og rótgrónum landbúnaði og búsetusögu. Landnámssaga, Íslendingasögur og menningararfur eru áberandi þættir í sérstöðu svæðisins. Dalirnir eru miðja norð-vesturfjórðungs landsins sem tengja saman Vesturland og Vestfirði, og hafa því mikilvæga stöðu í þróun ferðaleiða milli landshlutanna.