Staða ferðamála
Gögn, rannsóknir og greiningar
Staða ferðamála
Til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um þróun Vesturlands sem áfangastaðar þurfum við að þekkja stöðu ferðamála í landshlutanum og fylgjast með því hvernig þau þróast.
Hér tökum við saman tölulegar upplýsingar, rannsóknir og greiningar sem varpa ljósi á umfang og þróun ferðaþjónustu, ferðavenjur gesta og áhrif ferðamála á samfélag og atvinnulíf Vesturlands.
Þessi þekking nýtist öllum sem koma að ferðamálum á Vesturlandi við stefnumótun, áætlanagerð og ákvarðanir um verkefni og áherslur til framtíðar.
Ferðaþjónustan í tölum
Lykiltölur og þróun ferðamála
Lykiltölurnar gefa yfirsýn yfir nokkra mikilvæga þætti ferðamála á Vesturlandi, svo sem heimsóknir og gistinætur gesta, gistirými og atvinnu í ferðaþjónustu.
Tölurnar byggja á gögnum frá ólíkum heimildum og mæla því ekki allar það sama. Mikilvægt er að þekkja hvað liggur að baki hverri tölu til að geta túlkað hana rétt.
Hér fyrir neðan má opna hverja lykiltölu og lesa nánari skýringar ásamt upplýsingum um uppruna gagnanna.
Viðmiðunarár
2025
Smelltu á lykiltölu til að sjá skýringar og heimildir.
Mikilvægt við túlkun talna
Tölur um heimsóknir og hlutfall erlendra gesta byggja á úrtakskönnunum og eru áætlaðar stærðir. Upplýsingar um gistinætur og gistirými byggja hins vegar á skráðum gögnum. Því þarf að hafa í huga að mælikvarðarnir lýsa ólíkum þáttum ferðaþjónustunnar og eru ekki beint samanburðarhæfir.