Fara í efni

Þróunarverkefni 

Til að framtíðarsýn og markmið Áfangastaðaáætlunar Vesturlands verði að veruleika þurfum við að vinna saman að verkefnum sem stuðla að jákvæðri þróun áfangastaðarins.

Þróunarverkefnin byggja á þekkingu á stöðu ferðamála, þörfum samfélagsins og þeim tækifærum sem felast í sérstöðu Vesturlands. Þau geta meðal annars snúið að samstarfi, upplýsingamiðlun, rannsóknum, þróun ferðaleiða og bættri upplifun íbúa og gesta.

Verkefnin eru ólík að umfangi og framkvæmd og geta verið í umsjón mismunandi hagaðila. Með því að miðla upplýsingum um verkefnin, framvindu þeirra og árangur getum við öll fylgst með því hvernig sameiginlegar áherslur verða að aðgerðum.