Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa
Kynntu þér hlutverk Markaðsstofu Vesturlands, samstarf stoðþjónustu ferðamála á Íslandi og hvernig þú getur tekið þátt í sameiginlegu markaðsstarfi.
Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa
Hlutverk okkar
Hlutverk Markaðsstofu Vesturlands – áfangastaðastofu – er að efla og kynna Vesturland sem áfangastað í samstarfi við sveitarfélög, ferðaþjónustuaðila, íbúa og aðra hagaðila.
Við erum hluti af stoðþjónustu ferðamála og vinnum að því að tengja saman fólk, þekkingu og verkefni sem stuðla að ábyrgri þróun áfangastaðarins og markvissri kynningu hans.
Starf okkar skiptist í tvo meginþætti sem styðja hvor annan: áfangastaðaþróun og markaðsstarf. Sameiginlegt markmið þeirra er að efla Vesturland sem eftirsóknarverðan áfangastað, styðja við samstarf og auka árangur af ferðaþjónustu í sátt við náttúru og samfélag.
Samstarf á landsvísu
Samstarf stoðþjónustu ferðamála á Íslandi
Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa – er einn hlekkur í samstarfi stoðþjónustu ferðamála á Íslandi. Við vinnum með Ferðamálastofu, Íslandsstofu og áfangastaða- og markaðsstofum annarra landshluta að þróun og kynningu Íslands sem áfangastaðar.
Hver þessara aðila hefur sitt hlutverk, en með samstarfinu getum við miðlað staðbundinni þekkingu um Vesturland, nýtt sameiginleg gögn og reynslu og komið upplýsingum um sérstöðu, upplifun og þjónustu á Vesturlandi inn í víðtækara kynningarstarf fyrir Ísland.
Samstarfið styrkir þannig starf okkar á Vesturlandi og tengir hagaðila í landshlutanum við sameiginlega áfangastaðaþróun og markaðsstarf á landsvísu.
Samstarf og upplýsingamiðlun
Þín þátttaka í sameiginlegu markaðsstarfi
Góð kynning á Vesturlandi byggir á réttum og aðgengilegum upplýsingum um þá þjónustu og upplifun sem hér er í boði.
Ferðaþjónustuaðilar þekkja sína starfsemi best. Með því að miðla upplýsingum, myndum, fréttum og nýjungum til Markaðsstofu Vesturlands stuðla þeir að því að hægt sé að kynna þjónustu þeirra og landshlutann með réttum og markvissum hætti.
Þessar upplýsingar nýtast ekki aðeins í kynningu Vesturlands heldur geta þær einnig orðið hluti af sameiginlegu kynningarstarfi Íslands fyrir innlenda og erlenda markaði.
Þín þekking og þín þátttaka skipta máli.
Með virkri upplýsingamiðlun og samstarfi styrkjum við saman kynningu Vesturlands og Íslands í heild.


