Fara í efni

Um Áfangastaðaáætlun

 

Kynntu þér áfangastaðaáætlun Vesturlands, framtíðarsýn hennar og hvernig við vinnum saman að þróun áfangastaðarins.

Áfangastaðaáætlun Vesturlands

Um áfangastaðaáætlunina

Áfangastaðaáætlun Vesturlands er sameiginleg stefna um þróun ferðamála í landshlutanum. Hún byggir á þekkingu á stöðu og sérstöðu Vesturlands og stefnumótun heimafólks sem er unnin í samstarfi við sveitarfélög, íbúa og aðra hagaðila.

Áætlunin er leiðarljós fyrir sjálfbæra þróun Vesturlands sem áfangastaðar og nýtist við stefnumótun, samráð og forgangsröðun verkefna.

Hún er birt á þessum vef sem lifandi stefnu- og upplýsingaveita þar sem gögn, áherslur og verkefni eru uppfærð eftir því sem nýjar upplýsingar liggja fyrir og verkefnum miðar áfram.

Hvað er áfangastaðaáætlun?

Hún skapar sameiginlegan grundvöll fyrir ákvarðanir um þróun ferðamála, skipulag, uppbyggingu innviða og samstarf hagaðila

Áætlunin er sett fram í þremur meginhlutum:

ÁFANGASTAÐURINN – Hvar stöndum við? Upplýsingar um Vesturland, ferðasvæðin fjögur og stöðu ferðamála.

Yfirlit yfir áfangastaðaáætlun Vesturlands

ÞRÓUN – Hvert stefnum við? Framtíðarsýn, meginmarkmið, áherslur og þróunarverkefni.

UPPBYGGING – Hvað ætlum við að gera? Yfirlit yfir hugmyndir að uppbyggingarverkefnum sem hafa verið samþykktar til birtingar í áætluninni.

Hvernig nýtist áfangastaðaáætlunin?

Áfangastaðaáætlunin er sameiginlegt verkfæri fyrir sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir, íbúa og aðra hagaðila sem koma að þróun ferðamála á Vesturlandi.

Sveitarfélög

Sveitarfélög geta nýtt áætlunina við stefnumótun, skipulagsvinnu, forgangsröðun verkefna og ákvarðanir um uppbyggingu innviða.

Ferðaþjónustuaðilar og fyrirtæki

Ferðaþjónustuaðilar og fyrirtæki geta nýtt upplýsingar um stöðu og þróun ferðamála, sameiginlegar áherslur og fyrirhuguð verkefni við eigin áætlanagerð, vöruþróun og samstarf.

Stofnanir og aðrir opinberir aðilar

Stofnanir og aðrir opinberir aðilar geta nýtt áætlunina til að fá yfirsýn yfir þarfir og áherslur landshlutans og sem grundvöll fyrir samráð og samhæfingu verkefna.

Hvernig er áætlunin unnin og uppfærð?

Áfangastaðaáætlun Vesturlands byggir á greiningu á stöðu ferðamála, þekkingu á sérstöðu og þörfum landshlutans og samráði við sveitarfélög, ferðaþjónustuaðila, íbúa og aðra hagaðila.

Áfangastaða- og Markaðsstofa Vesturlands hefur umsjón með áætluninni og vinnur að þróun hennar og eftirfylgni í samstarfi við hagaðila.

Áætlunin er lifandi verkfæri. Framtíðarsýn og meginmarkmið mynda grunn að langtímastefnu, en tölulegar upplýsingar, greiningar, áherslur og verkefnayfirlit eru uppfærð eftir því sem ný gögn liggja fyrir og aðstæður breytast.

Með reglulegri uppfærslu og eftirfylgni er leitast við að tryggja að áætlunin endurspegli stöðu ferðamála og nýtist áfram við ákvarðanatöku og forgangsröðun verkefna.

Áfangastaðaáætlun Vesturlands

Stefna og markmið

Áfangastaðaáætlun Vesturlands byggir á sameiginlegri framtíðarsýn og sex meginmarkmiðum sem vísa veginn í þróun ferðamála í landshlutanum.

Framtíðarsýnin lýsir því hvernig við viljum að Vesturland verði sem áfangastaður til lengri tíma. Meginmarkmiðin skilgreina þær áherslur sem þarf að vinna að til að framtíðarsýnin verði að veruleika. Saman mynda þau grunn að forgangsröðun verkefna, ákvarðanatöku og samstarfi um þróun áfangastaðarins.

Framtíðarsýn Vesturlands

Vesturland er eftirsóttur áfangastaður fyrir íbúa og gesti – til að dvelja og njóta.

Ferðaþjónusta á Vesturlandi byggir á sjálfbærni, ábyrgri nýtingu auðlinda og góðu samstarfi. Náttúra, saga, menning og matarauður móta sterka sérstöðu Vesturlands og skapa fjölbreytt tækifæri til gæðaþjónustu og upplifunar.

Vandað skipulag og uppbygging áningarstaða og útivistarsvæða stuðlar að góðri upplifun, öryggi fólks og náttúruvernd. Góðar samgöngur og grunnþjónusta, ásamt vandaðri upplýsingagjöf og leiðsögn, skapa góðar aðstæður fyrir íbúa og gesti sem velja Vesturland til að dvelja og njóta.

Meginmarkmið Áfangastaðaáætlunar Vesturlands

Meginmarkmiðin sex lýsa því sem við viljum leggja áherslu á í þróun Vesturlands sem áfangastaðar. Þau byggja á framtíðarsýninni og hjálpa okkur að ákveða hvaða verkefni og aðgerðir skipta mestu máli.

Markmiðin eru jafnframt viðmið til að fylgjast með þróun ferðamála og meta hvort verkefni og aðgerðir skili þeim árangri sem stefnt er að.

Skýringarmynd um sex meginmarkmið Áfangastaðaáætlunar Vesturlands

Þau eru ekki eingöngu verkefni einstakra stofnana eða sveitarfélaga, heldur sameiginleg leiðarljós fyrir alla sem hafa áhrif á þróun áfangastaðarins.

Áfangastaðaáætlun Vesturlands

Áfangastaðaþróun og samstarf

Þróun Vesturlands sem áfangastaðar er sameiginlegt verkefni okkar allra sem búum, störfum eða höfum hagsmuna að gæta á svæðinu.

Við höfum hvert um sig ólíka þekkingu, reynslu, þarfir og hugmyndir um framtíð Vesturlands. Með því að miðla þessari þekkingu, hlusta hvert á annað og vinna saman getum við mótað áfangastað þar sem hagsmunir samfélagsins, náttúrunnar og ferðaþjónustunnar fara saman.

Við erum öll hagaðilar í þróun Vesturlands og framlag hvers og eins skiptir máli.

Auðlindir og hagaðilar

Vesturland býr yfir fjölbreyttum auðlindum sem móta sérstöðu þess sem áfangastaðar. Þar má nefna náttúru, sögu, menningu, samfélag, mannauð og þá þjónustu og aðstöðu sem byggð hefur verið upp.

Við sem búum, störfum, eigum land eða höfum annarra hagsmuna að gæta á Vesturlandi erum hagaðilar í þróun áfangastaðarins. Það á jafnt við um íbúa, landeigendur, fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög, stofnanir og stjórnvöld.

Við höfum ólík hlutverk og hagsmuni, en sameiginlegt er að ákvarðanir okkar og athafnir geta haft áhrif á þróun svæðisins.

Með því að þekkja auðlindirnar, virða ólíka hagsmuni og nýta sameiginlega þekkingu getum við unnið að ábyrgri þróun Vesturlands í sátt við náttúru og samfélag.

Auðlindir – Hagaðilar

Skýringarmynd um auðlindir og hagaðila á Vesturlandi
Virkt samstarf um þróun áfangastaðarins

Góð áfangastaðaþróun byrjar hjá okkur sjálfum.

Hvort sem við erum landeigendur, íbúar, ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélög, stoðþjónusta ferðamála eða stjórnvöld þurfum við hvert um sig að þekkja okkar aðstæður, greina þarfir og tækifæri og móta hugmyndir um þá þróun sem við viljum sjá.

Þetta er heimavinnan okkar.

En heimavinnan ein og sér dugar ekki. Við þurfum líka að miðla upplýsingum og þekkingu, hlusta á sjónarmið annarra og taka virkan þátt í samtali og samstarfi.

Þannig tengjum við saman fólk, hugmyndir og svæði. Samstarfið nær frá nærumhverfinu til ferðasvæðanna, Vesturlands alls, samstarfs á landsvísu og tengsla út fyrir landsteinana.

Þegar við leggjum hvert okkar af mörkum og vinnum saman að sameiginlegum áherslum byggjum við upp sterkari heild.

Samstarfsstig, samráð og sameiginlegar aðgerðir

Skýringarmynd um samstarfsstig, samráð og sameiginlegar aðgerðir

Þín þekking og þín sjónarmið skipta máli.

Áfangastaðaáætlun Vesturlands er lifandi áætlun sem þróast með þátttöku þeirra sem tengjast svæðinu. Við hvetjum þig til að fylgjast með, koma ábendingum á framfæri og taka þátt í samtali um framtíð Vesturlands.