Akranes - áfangastaður
Stæðsti þéttbýliskjarninn og þjónustubær á Skipaskaga við mynni Hvalfjarðar, með sterka tengingu við sjó, útivist og sögu svæðisins. Í bænum og næsta nágrenni eru fjölbreyttir áningar- og útivistarmöguleikar, strönd, gönguleiðir og kennileiti, auk góðrar þjónustu. Markviss uppbygging innviða, stýring umferðar og skýr upplýsingagjöf eru lykilatriði til að bæta upplifun gesta, tryggja öryggi og taka tillit til þolmarka og lífsgæða heimafólks.
Framtíðarsýn fyrir staðinn:
- Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
- Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
- Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun
Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:
- Náttúru- /minjavernd
- Öryggi ferðafólks
- Þolmörk heimafólks
- Upplifun gesta
- Þjónustuuppbygging
- Uppbygging til að dreifa álagi á ásettu svæði
- Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði
Helstu aðgerðir og verkþættir:
- Skipulag og hönnun
- Öryggisaðgerðir
- Náttúru-/minjavernd
- Aðgengi og stígagerð
- Merkingar og upplýsingagjöf
- Uppbygging þjónustuaðstöðu
Langisandur - útivistarsvæði
Víðáttumikil strandlengja með skeljasandi á Akraness sem hefur lengi verið eitt helsta útivistarsvæði bæjarins. Langisandur er mikið notaður allt árið til göngu, útivistar og strandlífs og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir heilsu, lífsgæði og daglega útivist heimafólks. Svæðið hefur jafnframt sögu- og landslagslega sérstöðu og er vel staðsett í tengslum við íþróttasvæði og þjónustu. Aukin nýting kallar á markvissa uppbyggingu innviða, skýra stýringu og vernd strandar til að tryggja öryggi, góða upplifun gesta og samspil við þarfir heimamanna.
Framtíðarsýn fyrir staðinn:
- Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
- Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
- Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun
Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:
- Náttúru- /minjavernd
- Öryggi ferðafólks
- Þolmörk heimafólks
- Upplifun gesta
- Þjónustuuppbygging
- Uppbygging til að dreifa álagi á ásettu svæði
- Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði
Helstu aðgerðir og verkþættir:
- Skipulag og hönnun
- Öryggisaðgerðir
- Náttúru-/minjavernd
- Aðgengi og stígagerð
- Merkingar og upplýsingagjöf
- Uppbygging þjónustuaðstöðu
Garðalundur - skógræktar- og útivistarsvæði
Gróskumikið skógræktar- og útivistarsvæð við golfvöllinni á Akranesi, sem er eitt helsta samkomu- og útivistarsvæði bæjarins. Garðalundur býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir alla aldurshópa, með stígum, leiksvæðum, tjörnum og góðri aðstöðu til dvalar og samveru. Svæðið er mikið nýtt til daglegrar útivistar og mannfagnaða og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir heilsu, samfélag og lífsgæði heimafólks. Með aukinni aðsókn gesta er mikilvægt að vinna markvisst að stefnumótun og uppbyggingu innviða til að tryggja öryggi, góða upplifun og sjálfbæra nýtingu svæðisins öllum til heilla.
Framtíðarsýn fyrir staðinn:
- Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
- Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
- Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun
Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:
- Náttúru- /minjavernd
- Öryggi ferðafólks
- Þolmörk heimafólks
- Upplifun gesta
- Þjónustuuppbygging
- Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði
Helstu aðgerðir og verkþættir:
- Skipulag og hönnun
- Öryggisaðgerðir
- Náttúru-/minjavernd
- Aðgengi og stígagerð
- Merkingar og upplýsingagjöf
- Uppbygging þjónustuaðstöðu
Safnasvæðið að Görðum
Mikilvægt menningarsvæði sem miðlar sögu byggðar, atvinnu og mannlífs á Akranesi og sunnan Skarðsheiðar. Safnasvæðið sameinar nútímalega grunnsýningu með uppgerðum sögulegum húsum og sýnir þróun frá sjávarþorpi til kaupstaðar. Svæðið er sífellt vinsælli áningarstaður og gegnir lykilhlutverki í fræðslu, upplifun og varðveislu menningarminja. Aukinn fjöldi gesta kallar á skýra stefnumótun, góða aðkomu og innviði sem styðja við upplifun, vernd minja og sátt heimafólks.
Framtíðarsýn fyrir staðinn:
- Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
- Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
- Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun
Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:
- Náttúru- /minjavernd
- Öryggi ferðafólks
- Þolmörk heimafólks
- Upplifun gesta
- Þjónustuuppbygging
- Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði
Helstu aðgerðir og verkþættir:
- Skipulag og hönnun
- Öryggisaðgerðir
- Náttúru-/minjavernd
- Aðgengi og stígagerð
- Merkingar og upplýsingagjöf
- Uppbygging þjónustuaðstöðu
Akranesvitar og Breiðin
Áningar- og útsýnissvæði á ysta hluta Akraness með víðáttumiklu útsýni yfir Faxaflóa. Þar standa tveir vitar, þar á meðal einn elsti steinsteypti viti landsins, og svæðið ber skýr merki um sjávarsögu og fyrri atvinnuhætti. Breiðin er jafnframt mikilvæg náttúru- og útivistarsvæði með ríkulegu fuglalífi og aðgengi að strandupplifun allt árið. Aukin aðsókn kallar á markvissa stefnumótun og uppbyggingu innviða til að tryggja öryggi, vernd náttúru og menningarminja og tryggja góða upplifun gesta og heimafólks.
Framtíðarsýn fyrir staðinn:
- Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
- Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
- Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun
Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:
- Náttúru- /minjavernd
- Öryggi ferðafólks
- Þolmörk heimafólks
- Upplifun gesta
- Þjónustuuppbygging
- Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði
Helstu aðgerðir og verkþættir:
- Skipulag og hönnun
- Öryggisaðgerðir
- Náttúru-/minjavernd
- Aðgengi og stígagerð
- Merkingar og upplýsingagjöf
- Uppbygging þjónustuaðstöðu
Strandstígur um Akranes
Samfelldur göngu- og hjólreiðastígur meðfram strandlínu Akraness sem tengir saman byggð, útivistarsvæði og áningarstaði, m.a. Langasand, Breiðina, Kalmannsvík, Elínarhöfða, Miðvog og Innstavog. Leiðin liggur um svæði með ríkri sögu og skráðum fornleifum, auk fjölbreyttrar strand- og náttúruupplifunar. Markviss uppbygging stígsins styrkir örugga og sjálfbæra umferð gangandi og hjólandi, bætir tengingar innan bæjarins og styður við vernd menningarminja, náttúru og lífsgæði heimafólks samhliða aukinni notkun.
Framtíðarsýn fyrir staðinn:
- Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
- Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
- Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun
Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:
- Náttúru- /minjavernd
- Öryggi ferðafólks
- Þolmörk heimafólks
- Upplifun gesta
- Þjónustuuppbygging
- Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði
Helstu aðgerðir og verkþættir:
- Skipulag og hönnun
- Öryggisaðgerðir
- Náttúru-/minjavernd
- Aðgengi og stígagerð
- Merkingar og upplýsingagjöf
- Uppbygging þjónustuaðstöðu
Akrafjall - gönguleiðir og útivistarsvæði
Akrafjall er í Hvalfjarðarsveit, en er jafnframt bæjarfjall Akraness og eitt mest áberandi kennileiti svæðisins og blasir við frá höfuðborgarsvæðinu. Fjallið er mikið notað til göngu og útivistar af heimafólki og gestum. Akrafjall býður upp á fjölbreyttar og krefjandi gönguleiðir með víðsýni yfir nágrennið, Hvalfjörð, Faxaflóa, Borgarfjörð, út á Reykjanes og upp á Snæfellsnes. Aukin aðsókn kallar á skýra stýringu, merkingar og upplýsingagjöf til að tryggja öryggi gesta, vernda viðkvæma náttúru og samræma útivistarnotkun við þolmörk svæðisins og lífsgæði heimafólks.