Fara í efni

Selskógur í Skorradal

Selsskógur er skjólsælt útivistarsvæði við sunnanvert Skorradalsvatn, umvafið kjarrlendi og ræktuðum skógi. Þar er greiðfært umhverfi til göngu og útivistar í nánum tengslum við vatnið og skóginn. Aukin notkun svæðisins kallar á skýra stýringu, merkingar og áframhaldandi uppbyggingu aðstöðu til að tryggja góða upplifun, öryggi gesta og vernd gróðurs og náttúru í sátt við heimafólk.

Framtíðarsýn fyrir staðinn:

  • Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun

Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:

  • Náttúru- /minjavernd
  • Þolmörk heimafólks
  • Upplifun gesta
  • Þjónustuuppbygging
  • Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði

Helstu aðgerðir og verkþættir:

  • Skipulag og hönnun
  • Náttúru-/minjavernd
  • Aðgengi og stígagerð
  • Merkingar og upplýsingagjöf
  • Uppbygging þjónustuaðstöðu

Hreppslaug - friðlýst sundlaug

Hreppslaug er friðlýst steinsteypt sundlaug frá árinu 1928, með heitu vatni sem kemur úr uppsprettum í hlíðinni fyrir ofan. Laugin hefur mikið menningar- og byggingarsögulegt gildi og er mikilvæg fyrir upplifun og lífsgæði svæðisins. Aukin aðsókn gesta kallar á áframhaldandi stefnumótun, viðhald og stýringu til að vernda friðlýst mannvirki, byggja upp aðstöðu og  innviði til að tryggja öryggi og jákvæða upplifun gesta og samræma notkun svæðisins við gildi þess og vilja heimafólks.

Framtíðarsýn fyrir staðinn:

  • Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
  • Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
  • Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun

Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:

  • Náttúru- /minjavernd
  • Öryggi ferðafólks
  • Þolmörk heimafólks
  • Upplifun gesta
  • Þjónustuuppbygging
  • Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði

Helstu aðgerðir og verkþættir:

  • Skipulag og hönnun
  • Öryggisaðgerðir
  • Náttúru-/minjavernd
  • Aðgengi og stígagerð
  • Merkingar og upplýsingagjöf
  • Uppbygging þjónustuaðstöðu

Skorradalur - útivistarsvæði

Skorradalur er skógivaxinn dalur með Skorradalsvatn í miðju og eitt fjölbreyttasta útivistarsvæði Borgarfjarðar. Samspil skóga, vatns og fjalllendis skapar sterka sérstöðu og laðar bæði heimafólk og gesti að til útivistar allt árið. Vaxandi sumarhúsa- og heilsársbúseta, auk aukinnar aðsóknar, kallar á heildstæða stefnumótun um útivist, aðgengi og stýringu til að vernda náttúru, tryggja öryggi og samræma notkun svæðisins við þolmörk og lífsgæði heimafólks.

Framtíðarsýn fyrir staðinn:

  • Kennileiti og segull fyrir ferðasvæðið
  • Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun
  • Þjónustustaður; þjónusta, afþreying og upplifun

Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:

  • Náttúru- /minjavernd
  • Öryggi ferðafólks
  • Þolmörk heimafólks
  • Upplifun gesta
  • Þjónustuuppbygging
  • Uppbygging til að dreifa álagi á ásettu svæði
  • Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði

Helstu aðgerðir og verkþættir:

  • Skipulag og hönnun
  • Öryggisaðgerðir
  • Náttúru-/minjavernd
  • Aðgengi og stígagerð
  • Merkingar og upplýsingagjöf
  • Uppbygging þjónustuaðstöðu

Síldarmannagötur - forn þjóðleið

Síldarmannagötur eru forn þjóðleið yfir Botnsheiði sem tengir Botnsdal í Hvalfirði við Skorradal. Leiðin var nýtt um aldir í tengslum við síldveiðar og nytjar í Hvalfirði og ber því sterka sögu- og menningarlega sérstöðu. Gönguleiðin liggur um heiðarland, hryggi og dali með víðáttumiklu útsýni og fjölbreyttri náttúru. Aukinn áhugi á gömlum ferðaleiðum kallar á skýrar merkingar, stikun og aðgerðir til að tryggja öryggi, vernda viðkvæma náttúru og gera sögulega leið aðgengilega með ábyrgum hætti fyrir heimafólk og gesti.

Framtíðarsýn fyrir staðinn:

  • Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun

Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:

  • Náttúru- /minjavernd
  • Öryggi ferðafólks
  • Þolmörk heimafólks
  • Upplifun gesta
  • Uppbygging áningarstaða/segla á minna sóttu svæði

Helstu aðgerðir og verkþættir:

  • Skipulag og hönnun
  • Öryggisaðgerðir
  • Náttúru-/minjavernd
  • Aðgengi og stígagerð
  • Merkingar og upplýsingagjöf

Bær í Borgarfirði - Skálholt; pílagrímsgönguleið

Söguleg pílagrímsgönguleið sem tengir saman Bæjarkirkju í Borgarfirði og Skálholt. Leiðin liggur um fjölbreytt landslag, byggð, dali og heiðar og er farin á nokkrum dögum. Gönguleiðin kallar á skýra merkingu, samræmda upplýsingagjöf og stýringu til að tryggja öryggi þátttakenda, vernda náttúru og minjar og stuðla að því að framkvæmd og aukin umferð séu í sátt við heimafólk og landnýtingu á leiðinni.

Framtíðarsýn fyrir staðinn:

  • Áningarstaður/útivistarleið; menningar-/náttúruupplifun

Tilgangur / áhersluatriði verkefnis:

  • Náttúru- /minjavernd
  • Öryggi ferðafólks
  • Þolmörk heimafólks
  • Upplifun gesta

Helstu aðgerðir og verkþættir:

  • Skipulag og hönnun
  • Öryggisaðgerðir
  • Náttúru-/minjavernd
  • Merkingar og upplýsingagjöf