Fara í efni

Dagur Snorra Sturlusonar

Á hverju ári er Dagur Snorra Sturlusonar haldinn í kringum ártíð hans, 23. september, til að heiðra minningu eins merkasta manns íslenskrar sögu. Snorri var skáld, sagnaritari, höfðingi og stjórnmálamaður sem skildi eftir sig verk sem hafa haft ómetanlegt gildi fyrir skilning okkar á sögu, menningu og goðafræði Norðurlanda. Fáir einstaklingar hafa haft jafn djúpstæð áhrif á varðveislu norræns menningararfs og hann.

MICE-ferðaþjónusta skilaði 33 milljörðum í tekjur árið 2025

Um 80 þúsund erlendir ferðamenn komu til Íslands árið 2025 gagngert til að sækja ráðstefnur, viðburði eða fara í hvataferðir. Þeir skiluðu um 33 milljörðum króna í tekjur, samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Íslandsstofu. Tekjur af svokallaðri MICE-ferðaþjónustu, sem nær yfir ráðstefnur, fundi, hvataferðir og viðburði (e. Meetings, Incentives, Conferences and Events), námu um 33 milljörðum króna hér á landi á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri greiningu KPMG á umfangi og efnahagslegum áhrifum greinarinnar.

Auðkennandi fjöll Vesturlands – Hafratindur

Fjallið rís 923 metra yfir sjávarmáli og er eitt af hæstu fjöllum Dalabyggðar. Það sker sig sérstaklega úr fyrir þá sjónrænu blekkingu sem lögun þess skapar. Úr Fagradal og frá Breiðafirði virðist Hafratindur vera stakur og hvass tindur, en úr Saurbæ og Gilsfirði kemur í ljós að tindurinn er hluti af allstórum fjallgarði. Þessi ólíka ásýnd eftir sjónarhorni gerir Hafratind að sérstöku og formfögru kennileiti Vesturlands.

Strong winds expected in West Iceland – strongest on northern Snæfellsnes

Strong winds and rain are expected across much of Iceland today, with conditions becoming particularly windy in West Iceland as the day progresses. The strongest winds are expected on northern Snæfellsnes.

Fjölmargar gönguleiðir á Vesturlandi skráðar hjá Ferðamálastofu

Göngufólk á Vesturlandi getur nú nýtt sér samræmdar upplýsingar um fjölmargar gönguleiðir á svæðinu í miðlægum gagnagrunni Ferðamálastofu. Yfir 200 gönguleiðir víðs vegar um landið hafa verið skráðar í gagnagrunninn, þar sem finna má upplýsingar um leiðir, erfiðleikastig, vegalengd, hækkun, áætlaðan göngutíma og mögulegar hættur.

Icelandic Nature Day – Celebrating the Nature of West Iceland

Icelandic Nature Day, celebrated every year on September 16, is a day dedicated to Iceland’s unique natural environment and the importance of protecting and preserving it. The date marks the birthday of Ómar Ragnarsson, a well-known Icelandic journalist, broadcaster and passionate advocate for nature conservation. For decades, he has played an important role in raising awareness of Iceland’s remarkable landscapes and the need to safeguard them for future generations.

Dagur íslenskrar náttúru – njótum náttúrunnar á Vesturlandi

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn ár hvert 16. september og hefur frá árinu 2010 verið helgaður íslenskri náttúru og mikilvægi þess að vernda hana og varðveita. Dagsetningin er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, sem hefur um áratugaskeið verið ötull talsmaður náttúruverndar og átt stóran þátt í að vekja athygli á náttúru Íslands og mikilvægi hennar.

Auðkennandi fjöll Vesturlands – Þyrill

Þyrill rís bratt úr landslaginu við norðanverðan fjörðinn og er krýnt miklu hamrabelti sem gefur því virðulegan og dramatískan svip. Þyrill er jafnframt nátengdur sögu og þjóðsögum Hvalfjarðar og hefur því bæði náttúrulegt og menningarlegt gildi.

Museums and Exhibitions in West Iceland – A Journey Through History and Culture

When autumn arrives and winter begins to settle over West Iceland, museums and exhibitions become especially appealing. Shorter days, changing weather and cooler temperatures create the perfect excuse to step indoors and discover the stories, traditions and people behind the landscapes. But museums in West Iceland are not simply places to escape the rain. They offer a fascinating journey through Iceland’s settlement history, Viking heritage, farming traditions, maritime culture, wartime history, local communities and contemporary art. From Borgarnes and Reykholt to Akranes, Hvanneyri, Snæfellsnes and beyond, there is much to discover.

Uppbyggilegt samtal um ferðaþjónustu í Hvalfirði

Ferðaþjónusta í Hvalfjarðarsveit hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum og innan sveitarfélagsins starfa fjölmargir aðilar sem bjóða upp á fjölbreytta og áhugaverða þjónustu fyrir gesti. Í ljósi þessarar jákvæðu þróunar bauð Hvalfjarðarsveit fulltrúum ferðaþjónustunnar til fundar í stjórnsýsluhúsinu að Innrimel 3 í Melahverfi mánudaginn 7. september. Fundurinn var opinn öllum og sérstaklega var fulltrúum ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu boðið að mæta og taka þátt í samtalinu.

Auðkennandi fjöll Vesturlands – Snæfellsjökull

Jökulkrýnd eldkeilan rís vestast á Snæfellsnesi og hefur um aldir verið eitt helsta kennileiti skagans. Samspil jökuls, eldfjalls og stórbrotins landslags gerir Snæfellsjökul einstakan og eitt þekktasta fjall Íslands.

Hausthefð sem sameinar fólk og sauðfé

Frá fyrstu tíð íslensks búskapar hafa fjárleitir og réttir verið mikilvægur hluti af sveitalífi og landbúnaðarhefð þjóðarinnar.