Samstaða og samstarf á Vesturlandi – almyrkvi 2026
Almyrkvi 2026 verður lengi í minnum hafður, ekki aðeins vegna hins stórbrotna náttúruatburðar heldur einnig vegna þeirrar samstöðu og samvinnu sem lagði grunn að öruggri og góðri upplifun íbúa og gesta á Vesturlandi.
Undirbúningur hófst vorið 2025 með það að markmiði að tryggja öryggi, stuðla að góðri upplifun og nýta tækifærið til að vekja athygli á Vesturlandi sem áhugaverðum áfangastað. Fljótlega varð ljóst að verkefnið yrði umfangsmikið og kallaði á víðtækt samstarf.