Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bjartmar Guðlaugsson & Hipsumhaps á Írskum dögum

3. júlí
Það verður sannkölluð tónlistarveisla þegar Bjartmar Guðlaugsson... & Hipsumhaps stíga á svið saman þann 3. júlí á Akranesi. Tónlist Bjartmars hefur átt stóran sess í íslenskri tónlistarsögu og nú fær hann félagsskap frá Hipsumhaps, sem hefur vakið mikla athygli fyrir frumlega og einlæga tónlist.
„Ég ætla að fara halda tónleika með hinum og þessum - hér og þar. Bjartmar er fyrstur á blað. Ég elska tónlistina hans. Hann er goðsögn í íslenskri tónlistarsögu.” segir Fannsi, Hipsumhaps.
Saman munu þeir setja saman smekklegan lagalista þar sem lög úr smiðju beggja fá að njóta sín – með frábærri hljómsveit að baki. Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara.
Hljómsveit kvöldsins:
Bjartmar Guðlaugsson - söngur og gítar
Fannar Ingi Friðþjófsson - söngur og gítar
Bergur Einar Dagbjartsson - trommur
Kristinn Þór Óskarsson - gítar
Ólafur Alexander Ólafsson - bassi
Tómas Jónsson - hljómborð
Tumi Árnason - saxófónn
Tónleikarnir fara fram á Írskum dögum í Guinnesstjaldinu, Lopapeysusvæðinu, þann 3. júlí á Akranesi.
Við hlökkum til að sjá ykkur!

GPS punktar

N64° 19' 1.490" W22° 5' 0.064"