Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

GG blús - Tónleikar á Grillhúsinu Borgarnesi

24. maí

Upplýsingar um verð

3500
GG BLÚS Í VESTURVEG
 
GG Blús er rokkaður blús-dúett mannaður þeim Guðmundi Jónssyni á gítar og söng og Guðmundi Gunnlaugssyni á trommur og söng. Þeir nafnar hafa marga fjöruna sopið í íslensku tónlistarlífi, starfað í hljómsveitum eins og Sálinni hans Jóns míns, Sixties, Nykur, Kentár og meira til.
 
Árið 2019 gáfu þeir út sína fyrstu plötu – Punch – við prýðis undirtektir og nýverið kom út önnur breiðskífa þeirra - Trouble In Mind - og segja má að báðar séu þær systurplötur, enda svipaðar að upplagi. Innihalda sjö frumsamin lög í bland við þrjár sígrænar ábreiður í frumlegum útsetningum, þar sem óbeislaður frumkraftur og ástríða fær að njóta sín - Trúir blúshefðinni en samt móttækilegir nútímanum. Make It Right nefnist fyrsta smáskífa nýju plötunnar, sem hefur fengið góðar viðtökur og er komin á Spotify og helstu streymisveitur alnetsins.
 
Á tónleikum eru GG blús annálaðir fyrir góða stemningu, þar sem leiknar er jöfnum höndum vel valdar blús-rokk-ábreiður genginna kynslóða og eigin ópusar. Hafa þeir margoft stigið á stokk hér og hvar, um borg og bý. Meðal annars komið fram á Blúshátíðum í Reykjavík, Hornafirði, Patreksfirði og Borgarnesi við góðan orðstír og helstu rokkbúllum borg óttans.��
 
 
Smáskífan Make It Right - textamyndband : https://www.facebook.com/share/v/1ADg2dC8kT/
 
Soundcloud : https://soundcloud.com/gg-blus (með textum)
 
 
 
Vefsíða: www.ggblus.is

GPS punktar

N64° 32' 30.704" W21° 54' 32.386"

Staðsetning

Grillhúsið Borgarnesi