Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sturluhátíð 2023 í Dölum

15. júlí kl. 13:00-18:00

Upplýsingar um verð

Frítt
Hátíðin er kennd við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum.
 
Hátíðin hefst við Staðarhól, Saurbæ í Dölum, með afhjúpun söguskilta sem Sturlufélagið hefur látið útbúa og gefa innsýn í sögu sagnaritarans og Sturlungu.
Að því loknu förum við í sögugöngu með leiðsögn um Staðarhól.
Að lokinni þessari dagskrá á Staðarhóli verður haldið að Laugum í Sælingsdal, þar sem dagskráin heldur áfram og verða bornar fram kaffiveitingar, í boði Sturlufélagsins, að gildum og góðum íslenskum sið.
 
Dagskrá:

Kl. 13:00 - Staðarhóll, Saurbæ í Dölum.
Afhjúpun söguskilta og Söguganga á Staðarhóli með leiðsögn.

Kl. 15:00 - Sturluhátíð að Hótel Laugum í Sælingsdal.
  1. Einar K. Guðfinnsson formaður Sturlufélagsins, setur hátíðina.
  2. Ármann Jakobsson, prófessor: Hverjum augum leit Sturla Þórðarson, vígið á Snorra Sturlusyni?
  3. Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur: Völvur og væringjar
  4. Torfi Tulinius prófessor: Sturla og sálin. Sýn Sturlu á mannssálina eins og hún birtist í verkum hans.
Soffía Meldal ung söngkona úr Dölunum, flytur lög á milli dagskráratriða.
 
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og eru allir velkomnir.
Sturlufélagið býður kaffiveitingar að hætti heimamanna.

Staðsetning

Staðarhóll í Saurbæ & Laugar í Sælingsdal