Tjaldsvæðið í Húsafellskógi
Tjaldsvæðið í Húsafellsskógi hefur notið mikilla vinsælda í áraraðir . Stæðin eru á miðju orlofssvæðinu og göngufæri í sund, golf, leiktæki, verslun og veitingar. Rafmagnstenglar eru á u.þ.b. 70 stæðum og þarf tengi skv. evrópskum stöðlum. Salerni, sturta, heitt og kalt vatn auk þvottaaðstöðu. Einnig eru tjaldstæði á fallegum stað í Reyðafellsskógi um 2 km. frá afþreyingarmiðstöðinni.
Yfir hásumarið er tendraður varðeldur öll laugardagskvöld kl. 21 ef veður, brunavarnir og fjöldatakmarkanir leyfa.
Rekin er fjölskyldustefna í Húsafelli sem m.a. snýr að því að hafðar eru þarfir fjölskyldunnar við uppbyggingu staðarins, leitast við að gera gesti meðvitaða um samfélagslega ábyrgð á uppeldi barna, að unglingar skuli ávallt vera í fylgd forráðamanna og að skemmtanir miðast við sameiginlega hagsmuni fjölskyldunnar.
Umgengnisreglur Húsafells
Gangið þrifalega um landið. Brýnið góða umgengni fyrir börnum og verið þeim til fyrirmyndar. Látið allt rusl í ruslagáma, sem eru við innkeyrsluna á svæðinu. Sýnið öðrum gestum tillitssemi. Yfir nóttina frá kl. 24:00 til kl. 09:00 er stranglega bannað að vera með hávaða eða annað ónæði
- Hlífið gróðri
- Bannað er að kveikja opinn eld á svæðinu. Notið ekki grill sem liggja á eða við jörð.
- Akið ekki utan vegarslóða og athugið að 20 km hámarkshraði er á sumarhúsa- og tjaldsvæðum.
- Lausa ganga hunda er stranglega bönnuð og er skylt að þrífa eftir þá.
- Aðgangur ungmenna að svæðinu, án forráðamanna er bannaður
- Notkun torfæruhjóla er bönnuð í landi Húsafells.
Gerið starfsfólki aðvart ef þið verðið fyrir ónæði. Brot á lögum eða umgengisreglum varðar brottrekstur af svæðinu, án nokkurra bóta.
Hægt er að leigja blakbolta, fótbolta, körfubolta og kubbaspil í tjaldmiðstöð.
Nánari upplýsingar má finna í afþreyingarmiðstöðeða í síma 435-1556 og í netfangi camping@husafell.is
Vefsíða: www.husafell.is/gisting/tjaldsvaedi