Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumarsólstöður í Hreppslaug

21. júní kl. 22:00-23:30
Fögnum lengsta degi ársins í töfrandi flotviðburði í Hreppslaug 💫
Flothetta býður upp á nærandi flotviðburð á Sumarsólstöðum í Hreppslaug í Borgarfirði. Þar ætlum við að eiga fallegt stefnumót við íslensku sumarnóttina og njóta himneskrar vatnavellíðunar og fallegrar samverustundar í vatninu.
Sumarsólstöður eru kynngimagnað fyrirbæri og tengdar ýmsum fornum átrúnaði. Það er hefð fyrir því á Norðurlöndunum að fólk komi saman til að gleðjast og njóta nærandi samvista í náttúrunni á lengsta degi ársins.
Hreppslaug í Borgarfirði er ein af þessum einstöku sveitasundlaugum Íslands en hún var byggð árið 1928. Laugin hefur farið í gegnum miklar endurbætur s.l. ár og er nú öll aðstaða þar til fyrirmyndar. Hreppslaug er einstök að því leyti að vatnið í laugina kemur úr heitum uppsprettum úr hlíðinni fyrir ofan.
Viðburðurinn hefst kl. 22.00
Nauðsyn að skrá sig fyrirfram hér: https://flothetta.is/products/sumarsolstodur-i-hreppslaug
Allar flotgræjur á staðnum

GPS punktar

N64° 32' 15.098" W21° 42' 8.444"