Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gönguferð með leiðsögn um byggðir álfa og huldufólks í landi Bjargs í Borgarnesi.

7. september
Bryndís Fjóla Pétursdóttir, garðyrkjufræðingur, heilari, Völva og stofnandi og eigandi Huldustígs ehf. mun leiða gönguna og segja frá huldufólkinu, álfunum og hafmeyjunum sem dvelja á þessu svæði.
Gönguferðin er um ein og hálf klukkustund og hefst við innganginn í Bjargsskóg við enda Arnarkletts. Gengið verður hægum skrefum um skógarstíg og tún, áð á vel völdunum stöðum þar sem við stöldrum við í þögn og skynjum okkur í samveru með fleiri víddum.
Viðburðurinn er gjaldfrjálst og og haldinn aðdraganda Álfastundar sem verður þann 4. október 2025 í Hjálmakletti Borgarnesi.

GPS punktar

N64° 33' 1.830" W21° 54' 0.790"