Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Beint frá býli dagurinn um allt land - Afmælishátíð á Háafelli-Geitfjársetri

Beint frá býli dagurinn verður haldinn um land allt 20. ágúst kl. 13-17 í tilefni 15 ára afmælis félagsins.

Víða á Íslandi má finna bændamarkaði, bæði í dreifbýli og þéttbýli. Sumir þeirra eru aðeins starfræktir á sumrin, en aðrir árið um kring. Vesturland er þar engin undantekning og víða um landshlutann má nálgast vörur merktar „Frá fyrstu hendi" og/eða „Sveitamatur" sem eru gæðamerki félagsins Beint frá býli, á matvælum íslenskra sveita þar sem framleiðslan byggir eingöngu á íslensku hráefni og íslenskri framleiðslu. Starfsemi og býli sem falla undir allar íslenskar kröfur um gæði, rekstur og eftirlit og geta sýnt fram á nauðsynlega viðurkenningu á slíku geta merkt vörur sínar merkjum félagsins. 

Þann 20. ágúst næstkomandi mun Beint frá býli halda upp á 15 ára afmæli félagsins með pompi og prakt um allt land!

Á Vesturlandi verður viðburðurinn haldinn á Háafelli í Hvítársíðu af ábúendum.
 
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi er styrktar- og samstarfsaðili hátíðarinnar.
 
Gestir munu geta notið þess sem Háafell - Geitfjársetur hefur upp á að bjóða og kynnst heimavinnsluaðilum frá lögbýlum á Vesturlandi - sem eru félagsmenn í Beint frá býli, en þeir verða á staðnum þennan dag til að kynna og selja vörur sínar og segja frá starfseminni.
 
Afmæliskaka, kaffi og djús er í boði Beint frá býli. Kvenfélag Hvítársíðu mun selja veitingar (pylsur og bakkelsi) auk þess að vera með skottsölu/nytjamarkað.
 
Háafell - Geitfjársetur býður frítt til geita.

Hoppukastali verður á staðnum fyrir börnin.
 
Hlökkum til að sjá sem flesta og eiga góðan afmælisdag saman!