Markaðsstofur landshlutanna funduðu með stoðkerfi ferðaþjónustunnar
02.02.2026
Markaðsstofur landshlutanna buðu starfsmönnum í stoðkerfi ferðaþjónustunnar til morgunverðarfundar þar sem farið var yfir verkefni fram undan og rædd sameiginleg málefni greinarinnar. Fundurinn er árlegur vettvangur sem styrkir þekkingu, samtal og tengsl þvert á landshluta.
Kristján Guðmundsson kynnti Vesturlandið og helstu verkefni ársins. Þar á meðal eru ferðaleiðir á öllum svæðum Vesturlands, en unnið verður markvisst að þróun og kynningu þeirra á árinu.
