Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

GO WEST fimmta fyrirtækið á Vesturlandi til að ganga til liðs við Vakann.

Go West /Út og vestur, ferðaþjónustufyrirtæki með aðsetur að Arnarstapa, er nú þátttakandi í Vakanum og hefur einnig uppfyllt gullviðmið umhverfiskerfis Vakans fyrir vistvæna ferðaþjónustu. Það eru hjónin Þuríður Maggý Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson sem reka Út og vestur ehf. og eru þau að halda upp á tíu ára afmæli fyrirtækisins þetta árið. Þau hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á líkamlega hreyfingu og umhverfismál í sinni þjónustu. Go West er fimmta fyrirtækið af Vesturlandi til að ganga til liðs við Vakann en fyrir eru Into the Glacier, Ensku húsin, Hótel Bifröst og Landnámssetur Íslands í Vakanum.
Jón Jóel og Maggý hjá Go West.
Jón Jóel og Maggý hjá Go West.

Go West /Út og vestur, ferðaþjónustufyrirtæki með aðsetur að Arnarstapa, er nú þátttakandi í Vakanum og hefur einnig uppfyllt gullviðmið umhverfiskerfis Vakans fyrir vistvæna ferðaþjónustu. Það eru hjónin Þuríður Maggý Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson sem reka Út og vestur ehf. og eru þau að halda upp á tíu ára afmæli fyrirtækisins þetta árið.  Þau hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á líkamlega hreyfingu og umhverfismál í sinni þjónustu.

Go West er fimmta fyrirtækið af Vesturlandi til að ganga til liðs við Vakann en fyrir eru Into the Glacier, Ensku húsin, Hótel Bifröst og Landnámssetur Íslands í Vakanum.


Vakinn er sérhannað gæðakerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu, en byggir á erlendri fyrirmynd. Þau fyrirtæki sem taka þátt njóta liðsinnis starfsfólks Vakans við að taka út reksturinn á grundvelli ítarlegra gæðaviðmiða, fá staðfestingu á því sem vel er gert og tækifæri til að bæta það sem betur má fara.

  • Helsti ávinningur af því að taka þátt er:

  • Ráðgjöf og handleiðsla.

  • Markviss úttekt byggð á gæðaviðmiðum sem hafa verið samþykkt af sérfræðingum á hverju sviði.

  • Staðfesting á því að fyrirtækið sinni gæða- og umhverfismálum af fagmennsku og heiðarleika.

  • Markaðslegur ávinningur og samkeppnisforskot með gæðaviðurkenningu Vakans.

  • Betri rekstur og aukin fagmennska.

  • Auknar líkur á að uppfylla væntingar innlendra og erlendra gesta.

 

GO WEST NÝR ÞÁTTTAKANDI Í VAKANUM - TIL HAMINGJU!

16.05.2018
Þuríður Maggý og Jón Jóel að Arnarstapa.
Þuríður Maggý og Jón Jóel að Arnarstapa.

Go West /Út og vestur, ferðaþjónustufyrirtæki með aðsetur að Arnarstapa, er nú þátttakandi í Vakanum og hefur einnig uppfyllt gullviðmið umhverfiskerfis Vakans fyrir vistvæna ferðaþjónustu. Það eru hjónin Þuríður Maggý Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson sem reka Út og vestur ehf. og eru þau að halda upp á tíu ára afmæli fyrirtækisins þetta árið.  Þau hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á líkamlega hreyfingu og umhverfismál í sinni þjónustu.

Að sögn Jóns Jóels hefur það verið mjög lærdómsríkt ferli að innleiða gæðakerfi Vakans, þ.e. að skrifa niður og skerpa á hugmyndum og framkvæmd vistvænnar ferðaþjónustu: "Stór þáttur í því er að lýsa hvernig við njótum og göngum um náttúru landsins, gulleggið okkar sem við verðum að passa vel upp á. Okkar  uppáhaldsstaður er Breiðafjarðarsvæðið, Dalir og Snæfellsnes en við förum einnig um Skaftafell og Öræfasveit, Fjallabak, Hornstrandir og ýmsar perlur í nágrenni Reykjavíkur. 

Okkur er það sannarlega kappsmál að ferðaþjónum á Vesturlandi meðal þátttakenda Vakans. Því fleiri, því betra. Það mun styrkja okkur og landshlutann í heild".

Vakinn