Mikill áhugi landsmanna á almyrkvanum í ágúst
Algengast er að fólk ætli að fylgjast með almyrkvanum frá heimili sínu eða í næsta nágrenni, en 43,3% svarenda sögðust ætla að gera það. Þá segjast 6,2% ætla að ferðast sérstaklega til að upplifa myrkvann, en 32,6% hafa áhuga á að fylgjast með honum en eiga enn eftir að ákveða hvar. Um 14,8% hyggjast ekki fylgjast með almyrkvanum og 3,1% verða erlendis þegar hann á sér stað.
Meðal þeirra sem ætla að ferðast vegna almyrkvans eru Vestfirðir og Vesturland vinsælustu áfangastaðirnir. Um þriðjungur þeirra sem hyggjast ferðast stefnir á hvort svæði um sig, en færri nefna höfuðborgarsvæðið eða Reykjanes.
Af þeim sem hafa áhuga á að fylgjast með almyrkvanum en hafa ekki ákveðið hvar, teljast tæplega þrír af hverjum fimm líklegastir til að gera það frá heimili sínu eða í nágrenni þess. Um þriðjungur þessa hóps hefur þó enn ekki gert upp hug sinn.
Spurt var einnig um gistingu meðal þeirra sem ætla að ferðast eða eru líklegir til að gera það vegna almyrkvans. Tæplega helmingur þeirra hyggst gista á áfangastaðnum og nefndu flestir gistingu hjá vinum eða ættingjum eða dvöl á tjaldsvæði sem fyrsta val.
Sambærileg könnun var framkvæmd í janúar síðastliðnum. Samanburður á niðurstöðunum bendir til þess að fleiri hafi nú ákveðið hvaðan þeir hyggjast fylgjast með almyrkvanum.
Nánari upplýsingar má finna í skýrslunni almyrkvi.pdf.
* Könnunin var framkvæmd í spurningavagni Gallup dagana 18.–30. júní 2026. Úrtakið var 2.296 einstaklingar, 18 ára og eldri, og svarhlutfall var 34,9%.