Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skráning hafin á Mannamót 2018

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 18. janúar 2018 í Reykjavík. Viðburðurinn verður haldinn í flugskýli flugfélagsins Ernis við Reykjavíkurflugvöll.

Mannamót 18. janúar 2018 

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 18. janúar 2018 í Reykjavík. Viðburðurinn verður haldinn í flugskýli flugfélagsins Ernis við Reykjavíkurflugvöll.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.

Sýnendur geta skráð sig hér!

Gestir geta skráð sig hér!

 

Nánari upplýsingar

Mannmót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru víðs vegar um landið. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda og efla tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðaþjónustu.

Á Mannamót bjóðum við gestum af höfuðborgarsvæðinu að koma að hitta okkur. Við sendum út rafræn boð og dreifum einnig boðskortum beint á skrifstofurnar:

  • Starfsfólki ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda
  • Starfsfólki upplýsinga- og bókunarmiðstöðva
  • Leiðsögumönnum
  • Nemendum í leiðsögunámi og ferðamálafræðum ásamt kennurum í ferðamálagreinum
  • Starfsfólki í þjónustuverum flugfélaga
  • Sölu- og kynningarfólki flugfélaga
  • Starfsfólki í mótttökum hótela og gistihúsa
  • Fjölmiðlum
  • Opinberum stofnunum:  Íslandsstofa, Ferðamálastofa, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Innanríkisráðuneytið, Samgöngustofu, Isavia, ofl.

Enginn aðgangseyrir er fyrir gesti á sýninguna. 

Að þessu sinni sendum við einnig út boðskort til erlendra ferðaskrifstofa og hvetjum við alla þátttakendur til að bjóða sínum tengiliðum. Við gerum þó ekki ráð fyrir miklum fjölda erlendra aðila í ár en erum að láta vita að þetta sé árlegt svo hægt sé að undirbúa þátttöku fyrir næsta ár ef áhugi er á. 

Skráning og gjald

Þátttökugjald fyrir hvert fyrirtæki er kr. 15.000 + vsk. Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamóti 2018. Skráningu lýkur 12. janúar 2018. Skráning fer fram á heimasíðu Mannamóta  www.markadsstofur.is.

Tímasetningar

  • Sýningarsalur tilbúinn fyrir þátttakendur kl. 10:30
  • Uppsetning milli kl. 10:30-12:00
  • Opið fyrir gesti: 12:00 – 17:00

Athugið að mikilvægt er að sýnendur byrji ekki að taka saman fyrr en að sýningunni er lokið kl 17:00. Einnig biðjum við sýnendur að koma ekki á sýningarsvæðið fyrr en kl 10:30 þar sem þá stendur yfir uppsetning á básum sem þarf að ganga hratt og vel fyrir sig.

Almennt fyrirkomulag

Á Mannamótum er hefðbundið vinnusýningarskipulag en ekki eru fundabókanir.

Stærð og fyrirkomulag á bás

Hvert fyrirtæki hefur um 1 m af borðplássi og 1 vegg á bak við sig (prentstærð er 95x239 cm á milli járna) til umráða og er staðsett á sama stað og önnur fyrirtæki úr sama landshluta.

Markaðsstofa hvers landshluta raðar upp fyrirtækjum innan síns svæðis og gætir þess að fyrirtæki sem starfa á ákveðnum svæðum séu í nágrenni við hvert annað en einnig að samkeppnisaðilar í sambærilegum rekstri séu ekki hlið við hlið. 

  • Einnota hvítur dúkur verður á öllum borðum.
  • Gott er að hafa með sér auglýsingastand til að hafa á bak við sig, nafnspjöld, bæklinga og annað kynningarefni til að dreifa til gesta.
  • Rafmagn verður ekki í boði inn á sýningarsvæði. Verið því með full hlaðnar tölvur og raftæki.
  • Þráðlaust net er ekki til staðar. Hægt að notast við 3G.
  • Opinn eldur er ekki leyfður á sýningarsvæði.
  • Salerni verða staðsett fyrir framan sýningarsvæðið.
  • Bílastæði eru takmörkuð. Sýnendur eru hvattir til að nýta skutlu sem boðið verður upp á, ekki er búið að ákveða hvaðan hún leggur af sað. Með þessu gefst kaupendum frekar kostur á að nýta bílastæðin við sýningarsvæðið.

Kynningarefni

Á Mannamótum hvetjum við þátttökufyrirtæki til að bjóða upp á léttar veitingar og smakk úr heimabyggð auk þess að taka með sér kynningarefni sem gefur góða mynd af sérkennum svæða og fyrirtækja.

Sýnendur fá svart hálsband þar sem hægt er að setja nafnspjald eða skrifa nafn einstaklings og fyrirtækis. Gestir fá hvítt hálsband við inngang og eru þannig aðgreindir frá öðrum sýnendum. 

Tilboð til sýnenda

Fyrir þá sem ætla að fljúga til Reykjavíkur bendum við á að Air Iceland Connect verður með sérstakt Mannamóta-tilboð, sem hægt verður að bóka frá 5.-8. desember. Í því felst að gefinn er 20% afsláttur af netverðum og ferðasætum þegar bókað er í gegnum vefsíðuna þeirra, með því að nota afsláttarkóðann MANNAMOT18. Aðeins er hægt að bóka flug á tímabilinu 16. -21. janúar.
Sömuleiðis er Flugfélagið Ernir með tilboð, en það býður 30 % afslátt. Þar þarf að bóka með því að senda tölvupóst á bokanir@ernir.is og þarf þá sérstaklega að taka fram að beðið er um afslátt vegna Mannamóta.

Sýnendur njóta sömuleiðis afsláttar af gistingu á Hotel Natura, með því að nota kóðann MANNAMÓT en hægt er að bóka fyrir tímabilið 17.-20. janúar. Hægt er að fá herbergi fyrir einn á 18.100 krónur fyrir nóttina eða fyrir tvo á 21.000 krónur fyrir nóttina. Morgunverður er innifalinn.

Gott að hafa í huga fyrir Mannamót:

  • Nafnspjöld. Vera með nafnspjöld til að dreifa og vera dugleg að fá nafnspjöld frá aðilum sem heimsækja og þannig safna tengiliðum fyrir fyrirtækið.
  • Bæklinga eða flyer. Upplýsingar um fyrirtækið og vöruna sem verið er að bjóða uppá. Nafn á fyrirtæki, staðsetningu (ekki gleyma að setja hvar á landinu viðkomandi þjónusta er), hvaða vöru er verið að bjóða uppá, mikilvægt að hafa góðar myndir því myndir segja jú meira en 1000 orð.
  • Veggspjald eða auglýsingastand. 
  • Tölvu/spjaldtölvu til að sýna fleiri myndir, aðstöðu og þjónsutuframboð (athugið þó að rafmagn er ekki í boði svo takið með aukahleðslu).
  • Vörur/smakk úr héraði. 
  • Hafa í huga hvað á að segja og hvað þarf að koma fram. Hvað er aðalatriði og hvað eru aukaatriði. Æfa lyfturæðuna. Það gæti orðið mikið af fólki og lítill tími með hverjum og einum.
  • Njóttu þess að vera til, njóttu þess að vera á staðnum, ná augnsambandi og brosa. Ekki gleyma að þú ert þarna til að ná samtali við gestina og þar sem ekki eru fyrirframbókaðir fundir byggir árangurinn á því hversu góður sölumaður þú ert.

Markaðsstofur landshlutanna hvetja öll fyrirtæki í ferðaþjónustu til að taka þátt í Mannamóti og nýta tækifærið til kynningar og sölu á sínu fyrirtæki. Þetta er einstakt tækifæri til að efla tengsl við núverandi viðskiptavini, mynda ný tengsl og ekki síður til að kynnast samstarfsaðilum um allt land.

Mannamót hefur þá sérstöðu að í sýningunni taka þátt fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, gömul og ný, frá öllum landshlutum. Uppsetningin og aðstaðan er hrá, óformleg og gefur góða mynd af sérkennum svæðanna sem hefur vakið ánægju bæði gesta og sýnenda. Markaðsstofurnar senda út þjónustukönnun eftir hverja sýningu þar sem aðilum gefst kostur á að koma skoðun sinni á framfæri og reynum við að aðlaga þjónustuna og skipulagið hverju sinni að þeim athugasemdum og tillögum sem koma fram.

Ef spurningar vakna varðandi þátttökuna hafðu þá samband við þína markaðsstofu.

Reykjanes: markadsstofa@visitreykjanes.is 
Vesturland: upplysingamidstod@vesturland.is 
Vestfirðir: travel@westfjords.is 
Norðurland: info@nordurland.is 
Austurland: east@east.is 
Suðurland: info@south.is 

Hlökkum til að eiga frábæran dag með ykkur á MANNAMÓTUM 2018!