Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sterk samstaða um þörf á skýrum ramma um gjaldtöku á ferðamannastöðum

Málþingið GJALDSKYLDA – þjónustugjöld eða þjórfé? Gjaldtaka á ferðamannastöðum – hlutverk, ábyrgð, réttindi og skyldur sem fór fram í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi í gær var sótt af fjölbreyttum hópi hagaðila.
Auk frummælenda og aðstandenda málþingsins mættu fulltrúar Ferðamálastofu, Umhverfisráðuneytis, SAF, ferðaþjónustufyrirtækja, þjóðgarða, innheimtufyrirtækja, landeigenda, bæjarstjórar, sveitarstjórnarfólk og almennir íbúar. Breidd hópsins endurspeglar hversu víðtæk áhrif þessi umræða hefur á samfélagið.
 
Á undanförnum árum hefur fjölgun ferðafólks og aukin umferð, þar á meðal skipulagðar hópferðir leitt til aukins álags á náttúrustaði um land allt. Uppbygging göngustíga, bílastæða og aðstöðu, aukin landvarsla, öryggismál og daglegt viðhald kallar á skýra ábyrgð og stöðugt fjármagn til að tryggja sjálfbærni þessara staða.
 
Í erindum og umræðum var fjallað um mismunandi leiðir til fjármögnunar og hvort og hvernig bein gjaldtaka á staðnum sjálfum geti verið hluti af lausninni. Þrátt fyrir ólík sjónarmið var skýr samhljómur um mikilvægi þess að móta sanngjarnan, gagnsæjan og fyrirsjáanlegan ramma sem tryggi uppbyggingu, rekstur og vernd náttúrustaða með sjálfbærum hætti.
 
Sérstök áhersla var lögð á að íslensk náttúra er kjarninn í ímynd og aðdráttarafli fyrir áfangastaðinn Ísland. Vernd hennar, ábyrg umgengni og jákvæð upplifun gesta eru því forsendur þess að landið haldi stöðu sinni og ímynd til framtíðar, sem eftirsóttur áfangastaður fyrir einstaka náttúruupplifun.
 
Jafnframt var bent á að mikilvægt er í þessu samhengi að taka tillit til samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og huga vel að þolmörkum atvinnugreinarinnar. Umræðan snerist því um hvernig hægt er að finna raunhæft jafnvægi milli verndar, ábyrgðar og sjálfbærrar nýtingar áfangastaðarins.
 
Málþingið markar mikilvægt skref í átt að heildstæðari og opnari umræðu um þetta viðfangsefni.
 
Hér fylgja upptökur af þeim erindum og umræðu sem fram fóru á málþinginu.

Hlédís Sveinsdóttir, Svæðisgarður/Vistvangur Snæfellsnes
Opnun málþings 


  Margrét Björk, Áfangastaða- og Markaðsstofu Vesturlands
Inngangur í málþing

 


Guðrún Þóra Gunnarsdóttir,  Rannsóknamiðstöð ferðamála
Kynning á RETURN-verkefni


Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar
Sveitarfélög: gjaldtaka á ferðamannastöðum – uppbygging og rekstur?


Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar
Gestagjöld: lykill að þjónustu og þekkingu


Ragnhildur Sigurðardóttir, þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs
Þjónustugjöld í Snæfellsjökulsþjóðgarði: áhrif og reynsla


Þorgrímur Guðmundsson, selabóndi, Ytri-Tungu
Selafjaran Ytri-Tungu – gjaldskyld bílastæði


Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures
Umgjörð og upplifun ferðamanna – réttlát gjaldtaka og aðgangsstýring á áningarstöðum


Pallborðsumræður og umræður í sal 


Lokaorð