Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vel heppnað Mannamót Markaðsstofa landshlutanna

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna var haldið fimmtudaginn síðastliðinn í Kórnum í Kópavogi. Það var margt um manninn, góð stemning og mikil bjartsýni ríkjandi innan ferðaþjónustunnar.
Frá Mannamótum 2023
Frá Mannamótum 2023

Mannamót er ferðakaupstefna sem haldin er af Markaðsstofum landshlutanna ár hvert á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við flugfélagið Erni og Isavia. Markmið ferðakaupstefnunnar og tilgangur er að skapa vettvang þar sem ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpar til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar og á sama tíma gefst gestum kostur á að kynna sér það sem landshlutarnir eru að bjóða upp á.

Þetta er í níunda skipti sem ferðakaupstefnan er sett upp en hún hefur verið haldin ár hvert síðan 2014, að undanskildu árinu 2021 þar sem heimsfaraldurinn setti strik í reikninginn. Þetta er sívaxandi viðburður sem hefur þróast og stækkað með árunum en metfjöldi gesta sótti sýninguna í ár eða u.þ.b. 800 manns. Það voru því yfir þúsund manns sem komu saman í Kórnum í ár og óhætt að segja að stemningin hafi verið frábær. 

Það var góð þátttaka frá Vesturlandi, þar sem 37 fyrirtæki mættu og mynduðu saman gott yfirlit yfir fjölbreytt úrval ferðaþjónustufyrirtækja sem landshlutinn býr yfir. Það var mikil jákvæðni í fólki og bæði sýnendur og gestir sammála um það að bjartir tímar væru framundan í greininni.