Vesturland fær tvo styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
Glymur í Hvalfirði – 26,45 milljónir króna
Verkefnið snýr að áframhaldandi vernd og uppbyggingu á svæðinu við Glym, næst hæsta foss Íslands. Áhersla er lögð á stígagerð og betri stýringu gesta, meðal annars um Svartahrygg og austan gilsins. Þá verður bætt við öryggisbúnaði við efra vað yfir Botnsá, hættulegum leiðum lokað betur og stafrænar leiðbeiningar þróaðar. Markmiðið er skýrt: að draga úr slysahættu og vernda viðkvæma náttúru svæðisins.

Súgandisey í Stykkishólmi – 35 milljónir króna
Uppbygging heldur áfram í Súgandisey þar sem unnið er að verkefninu Fjöregginu – nýju kennileiti fyrir Stykkishólm. Um er að ræða útsýnisskúlptúr og áningarstað sem býður upp á stórbrotið útsýni yfir Breiðafjörð og eyjarnar. Verkefnið er hannað með bæði upplifun og öryggi í huga, þar sem skýr leiðarstýring, handrið og aðrir öryggisþættir tryggja betra aðgengi og aukið öryggi gesta við bjargbrúnina.

(Ljósm. Stykkishólmur.is)
Með þessum styrkjum er stigið mikilvægt skref í átt að betri aðstöðu, auknu öryggi og sjálfbærari ferðaþjónustu á Vesturlandi.
Þessi verkefni eru bæði á framkvæmdalista áfangastaðaáætlunar Vesturlands og falla vel að áherslum um náttúruvernd og aukið öryggi á fjölsóttum áningarstöðum.