Þar sem Jökullinn ber við loft er Hótel Vest Mar. Hótelið er partur af fjölskyldureknu fyrirtæki sem hefur rekið Sker Restaurant frá árinu 2018. Hótelið og veitingastaðurinn eru í sama húsnæði á besta stað í Ólafsvík, með fallega sjávar- og fjallasýn úr öllum herbergjum. Á hótelinu upplifa gestir rólega og hlýja stemmningu, helmingur hótelsins var tekinn í gegn vorið 2025 og hefur fallegt skandinavískt yfirbragð. Gæða rúm frá Sleepy eru í öllum herbergjum hótelsins og höfum við fengið mikið lof gesta fyrir. Herbergin eru öll verulega rúmgóð eða um 36fm að stærð. Aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð frá Snæfellsjökulþjóðgarði.
- 19 herbergi
- 4manna/3manna/2manna herbergjaútfærslur
- 1 íbúð
- Morgunverður í boði á tímabilinu júní-september.
- Veitingastaður og bar
- Fundaraðstaða
- Ókeypis þráðlaust net
- Ókeypis bílastæði
- Hleðslustöðvar