Hótel Laxárbakki er fallega staðsett á bökkum Laxár í Leirársveit aðeins 12 km frá Akranesi og 20 km frá Borgarnesi. Boðið er upp á gistingu í rúmgóðum herbergjum með sérbaði og í sumarhúsi. Á hótelinu er veitingastaður opinn frá morgni til kvölds, heitur pottur og sauna. Fjölbreytt úrval afþreyingar í næsta nágrenni og ekki lengi verið að aka til allra helstu ferðamannastaða á Vestur- og Suðvesturlandi.