Tjaldsvæðið er staðsett í fallegu hrauni sem kallast Sandahraun. Á svæðinu er nýtt þjónustuhús með góðri aðstöðu, m.a. eldhúsi, salerni (einnig fyrir fatlaða), sturtum og vaskarými. Rafmagnstenglar eru á svæðinu og hægt er að leigja aðgang að rafmagni.
Á Hellissandi er einnig hægt að losa úrgang úr húsbílum og fá aðgang að heitu og köldu vatni. Þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs stendur við hlið tjaldsvæðisins og veitir gestum upplýsingar um þjóðgarðinn, náttúru svæðisins og fjölbreyttar gönguleiðir.
Skemmtilegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni, ásamt fallegum fjörum sem bjóða upp á fjölbreytta upplifun. Sólsetrin yfir Breiðafirði, séð frá Sandahrauni, eru óviðjafnanleg og þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er næsti nágranni tjaldsvæðisins, sem gerir það að frábærum upphafsstað til að njóta einstakrar náttúru Snæfellsness..