Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hverinn

- Veitingahús

Hvernig væri að prófa heimagerðu súpurnar okkar sem við eldum frá grunni úr hráefni sem við ræktum eða tínum sjálf.  Djúpsteikti fiskurinn okkar hefur notið mikilla vinsælda.  Okkar eigið batter og ferskleiki hráefnis er mikils metið.  Komið í heimsókn og njótið í heimilislegu umhverfi

Tjaldsvæðið

Tjaldsvæði Hversins er skógivaxið, rólegt og fjölskylduvænt með fjölbreytta þjónustu.  Það er staðsett í fögru umhverfi mitt í uppsveitum Borgarfjarðar þar sem stutt er í einstakar náttúruperlur og menningartengda staði. Tjaldsvæðið býður upp á 100 stæði fyrir tjöld, fellihýsi og húsbíla, þar af eru 60 stæði með aðgangi að 3.3kw rafmagni með lekaleiða. Þjónusta sem boðið er upp á er WC, heitt og kalt vatn, sturtur, þvottavél og þurrkari, leiktæki, sundlaug með heitum potti  150m í burtu og seyrulosun fyrir húsbíla.

Hobbitahús

Hægt er að tjalda litlum tjöldum inni í gróðurhúsum svokölluðum “hobbitahúsum” sem eru tjaldbraggar upphitaðir með jarðhita, klæddir plasti. 

Herbergi 

5 x 2ja manna herbergi bjóðast til leigu en það er eldunaraðstöðu, baðherbergi og stofu deilt. Sjónvarp er í stofu og á veröndinni er heitur pottur. Einnig 3ja manna herbergi í boði með sér baðherbergi.

Íbúð

Hægt er að leigja 42fm íbúð með tveimur svefnherbergjum með einu rúmi í hvoru, eldhúsi og baðherbergi. Svefnsófi er í stofu og því getur íbúðin rúmað allt 4 manns í svefnplássi. 

Heitir pottar og sundlaug

Heitur pottur býðst aðeins gestur og sundlaug svæðisins er í 2 mínútna göngu fjarlægð.

Hverinn

Hverinn

Hvernig væri að prófa heimagerðu súpurnar okkar sem við eldum frá grunni úr hráefni sem við ræktum eða tínum sjálf.  Djúpsteikti fiskurinn okkar hefur
Sundlaugin Kleppjárnsreykjum

Sundlaugin Kleppjárnsreykjum

Útisundlaug með heitum potti og sólbaðsaðstöðu.Tilvalin staður að koma á til að vera í rólegheitum og slaka á í notalegu umhverfi. Opnunartímar: Suma
Deildartunguhver

Deildartunguhver

Deildartunguhver í Borgarfirði er vatnsmesti hver í Evrópu. Hitastig vatnsins er 100° og úr hvernum koma um 180lítrar af heitu vatni á sekúndu.   Frá
Krauma

Krauma

Skammt norðan Deildartunguhvers standa Krauma - náttúrulaugar. Náttúrulaugarnar innihalda hreint og tært vatn, beint úr Deildartunguhver sem kælt
Sturlureykir Horse Farm

Sturlureykir Horse Farm

Hestarnir á Sturlureykjum taka vel á móti gestum og elska alla athygli enda eru þeir partur af fjölskyldunni, fædd að Sturlureykjum, ræktuð, tamin og
Kópareykir-Sumarhús

Kópareykir-Sumarhús

Kópareykir er sauðfjár- og hrossabú í nágrenni Reykholts. Við bjóðum upp á gistingu fyrir 1-5 manns í sumarhúsi með 2 svefnherbergjum, baðherbergi (m/

Aðrir (1)

Golfklúbburinn Skrifla Nes, Reykholtsdal 311 Borgarnes 435-1472