Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hlaðan Restaurant Miðhrauni

- Veitingahús

Hlaðan á Miðhrauni er fjölskyldurekinn veitingastaður í fallega uppgerðri hlöðu á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hér bjóðum við upp á morgunverðarhlaðborð flesta morgna og vandaðan matseðil yfir daginn með sjávarréttum, kjötréttum og grænmetisréttum, ásamt úrvali heimagerðra eftirrétta og góðra kaffidrykkja. Við leggjum áherslu á að elda sem mest frá grunni og notum ferskt hráefni úr héraði.

Við tökum vel á móti öllum sem eiga leið um nesið – hvort sem um er að ræða einstaklinga, fjölskyldur eða litla og stóra hópa. Börn eru sérstaklega velkomin og við leggjum áherslu á að þau hafi val um góðan mat úr alvöru hráefni.

Á svæðinu er leiksvæði bæði inni og úti, og Hraunböðin eru einnig á staðnum. Hægt er að kaupa aðgang að böðunum á veitingastaðnum. Þar sem við erum staðsett í sveitinni má líka oft sjá húsdýrin okkar á vappi, sem gleður bæði unga og eldri gesti.

Veitingastaðurinn er opinn allt árið, þó opnunartímar geti breyst eftir árstíðum. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni okkar.

Auk hefðbundinnar veitingaþjónustu er einnig hægt að bóka staðinn fyrir einkaviðburði fyrir allt að 140 manns, svo sem veislur, brúðkaup og aðra viðburði. Við vinnum með ykkur að því að skapa eftirminnilega upplifun fyrir ykkar sérstaka tilefni.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Miðhrauni.
heimasíðu okkar.  

Miðhraun - Lava Resort

Miðhraun - Lava Resort

Gestastofa Snæfellsness

Gestastofa Snæfellsness

Íbúa- og gestastofa Snæfellsness / Snæfellsnes Visitor Center, sem Svæðisgarðurinn Snæfellsnes heldur utan um í félagsheimilinu Breiðabliki, er opin a
Hótel Snæfellsnes

Hótel Snæfellsnes

Hótel Snæfellsnes býður upp á 14 herbergi. 13x tveggjamanna herbergi og 1x þriggjamanna herbergi. Hönnunin er stílhrein með innblæstri frá Scandinaviu
Hjá Góðu Fólki

Hjá Góðu Fólki

Hjá Góðu fólki er lítið kaffi- og listahús. Við vinnum með hráefni úr héraði og salat, jurtir og blóm úr gróðurhúsum hjá Ræktunarstöðinni Lágafelli. Þ