Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hátíð í bæ - Jólatónleikar kórs Akraneskirkju og Kalmans tónlistarfélags Akraness

13. desember kl. 16:00-18:00
Hátíð í bæ – Jólatónleikar í Bíóhöllinni.
Kalman – tónlistarfélag Akraness og Kór Akraneskirkju bjóða til hátíðlegra jólatónleika í Bíóhöllinni á Akranesi sunnudaginn 13. desember kl. 16.
Komdu og njóttu aðventunnar með fallegri jólatónlist í notalegu umhverfi. Fram koma Kór Akraneskirkju, Barnakór, Tríó Kjartans Valdemarssonar og Strengjasveit, ásamt gestum.
Sérstakur gestur tónleikanna er Pálmi Gunnarsson.
Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.
Þetta er tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna til að komast í jólaskapið.

GPS punktar

N64° 18' 53.523" W22° 5' 31.846"

Staðsetning

Bíóhöllin Akranesi