Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðlandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.
Að sýningu lokinni verður opið sirkusnámskeið – dótakassi með ýmsum sirkusáhöldum sem gestum og gangandi er frjálst að prófa. Sirkuslistafólk Hringleiks kennir lauflétta smiðju þar sem má stoppa við í styttri eða lengri tíma á meðan á smiðjunni stendur. Stór og smá geta hér leikið sér saman og lært ýmist að djöggla, snúa diskum eða að ná jafnvægi á veltibretti. Öll velkomin.