Hið margrómaða jólabingó Kvenfélagsins 19. júní verður haldið föstudagskvöldið 27. nóvember kl. 19:30 í Ásgarði, aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Að venju verður fjöldi glæsilegra vinninga og allur ágóði rennur til góðgerðarmála í héraði. Hægt verður að greiða bæði með reiðufé og korti og verður sjoppan að sjálfsögðu á sínum stað.
Verið öll hjartanlega velkomin!