Jólamarkaður í Miðgarði – 29.–30. nóvember kl. 13–17
Jólamarkaður til styrktar Innra-Hólmskirkju verður haldinn í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit. Þar verður boðið upp á handverk, sultur, kleinur, brodda, brauð, kökur og fleiri góðgæti. Einnig verður hægt að kaupa kaffi, rjómavöfflur og smákökur.
Hlý og notaleg aðventustemning – allir velkomnir.