Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opinn Teams-fundur – 12. mars

Markaðsstofa Vesturlands - áfangastaðastofa- heldur utan um samráðsvettvang Vesturlands vegna almyrkva, þar sem unnið er að því að skapa yfirsýn yfir aðstöðu, undirbúning og mögulegar aðgerðir og kynna það sem er í boði á Vesturlandi fyrir gesti sem koma til að sjá almyrkvann.
Við viljum sérstaklega ná til ferðaþjónustuaðila og landeigenda sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum, til dæmis með:

  • bílastæðum
  • tjaldsvæðum
  • aðstöðu fyrir hópa
  • önnur þjónustua

Af þessu tilefni bjóðum við einnig til opins upplýsingafundar á Teams fimmtudaginn 12. mars, þar sem farið verður yfir stöðu undirbúnings á Vesturlandi og rætt hvernig hægt er að vinna saman að góðum undirbúningi.

Fundurinn er sérstaklega ætlaður ferðaþjónustuaðilum og landeigendum, en öllum sem hafa áhuga á málinu er velkomið að mæta á fundinn.

📅 12. mars 2026 kl.14:00 -15:00
💻 Fundurinn fer fram á Teams, fundarboð sent þeim sem skrá sig