Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samráðsvettvangur um sólmyrkva



Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Vesturland 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan náttúruatburð sem vekur mikla athygli bæði innanlands og erlendis, því má gera ráð fyrir aukinni aðsókn gesta á svæðið. Þó óvissa ríki um veður, ferðamynstur og fjölda gesta benda fyrirliggjandi upplýsingar til þess að verulegt álag geti skapast á vegakerfi, þjónustu, fjarskipti og innviði á Vesturlandi, sérstaklega á sólmyrkvadaginn, en líka dagana í kringum atburðinn.

Samráðsvettvangur Vesturlands vegna sólmyrkva hefur verið stofnaður til að samræma undirbúning, upplýsingagjöf og samstarf milli sveitarfélaga, stofnana og annarra hagaðila. Markmið hans er að skapa sameiginlega yfirsýn yfir stöðu mála, tryggja samhæfingu aðgerða og miðla samræmdum upplýsingum um aðgengi, aðstöðu og aðstæður á Vesturlandi í aðdraganda almyrkvans.

Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa leiðir samráðsvettvanginn og heldur utan um fundi, upplýsingamiðlun og yfirsýn yfir stöðu mála. Undirbúningur og framkvæmd aðgerða er hins vegar á ábyrgð þeirra aðila sem fara með viðkomandi málaflokka, þar á meðal sveitarfélaga, viðbragðsaðila og annarra stofnana.

Mikilvægt er að öll sveitarfélög á Vesturlandi séu virkir þátttakendur í undirbúningi og samráði, skilgreini ábyrgð og verkþætti innan sinnar stjórnsýslu og vinni markvisst með samráðsvettvangnum. Undirbúningur og aðgerðir fyrir svona viðamikinn atburð verða aldrei traustari en veikasti hlekkurinn í samstarfinu. Til að tryggja sem besta niðurstöðu fyrir íbúa, gesti og starfsemi á svæðinu þarf samhæfða vinnu allra sveitarfélaga og hagaðila á Vesturlandi.

Kort: Andreas Dill & Sævar Helgi Bragason fyrir eclipse2026.is
Kortið hér að ofan sýnir hversu lengi almyrkvinn varir á mismunandi svæðum.


*Samráð við ferðaþjónustuaðila og landeigendur

Mikilvægt er að ná til ferðaþjónustuaðila og landeigenda sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum í tengslum við almyrkvann, til dæmis með:

  • bílastæðum
  • tjaldsvæðum
  • aðstöðu fyrir hópa
  • annarri þjónustu

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku samráði eru hvattir til að skrá sig hér:

Skráning í samráð um mögulega aðstöðu eða þjónustu vegna almyrkva
Linkur á skráningarform

Skráningin er ekki bindandi, heldur aðeins til að skrá áhuga á að ræða möguleika á nýtingu á aðstöðu eða landi. Markaðsstofa Vesturlands mun í framhaldi hafa samband við þá aðila sem skrá sig til frekara samráðs.





 

 


Starfsmenn samráðshóps

Margrét Björk Björnsdóttir

Fagstjóri áfangastaðar
maggy@west.is
433-2317
864-2955

 

 

Hrafnhildur Tryggvadóttir 

Verkefnastjóri Almyrka 
Hrafnhildur@ssv.is 
433-2312
8492718

 

 

 

Kristján Guðmundsson

Kynningar og upplýsingamál
kristjan@west.is
823-5764

 

 


Viðburðir á Vesturlandi 12. ágúst 

12. ágúst
Almyrkvablót á Eiríksstöðum
12.-16. ágúst
Almyrkvahátíð / Iceland Eclipse 2026 á Hellissandi
Viðburður haldin af:  Iceland Eclipse, Immersive Experiences and Secret Solstice Festival   Staðsetning viðburðar: Hellissandur   August 12-15, 2026 Snæfellsnes Peninsula, Iceland Total Solar Eclipse at 17:47 UTC On August 12, 2026, a total solar eclipse will sweep over Iceland for the first time in 72 years. For two full minutes, day turns to night in one of Earth’s most dramatic landscapes. From that moment on, the experience unfolds. World-class music, large-scale art, cosmic rituals, and thought-provoking encounters meet black sand beaches, lava tunnels, glaciers, and geothermal springs. Co-created by #IMXP and #SecretSolstice, this cosmic event welcomes a global community drawn to wonder, creativity, and connection. "Sól mun sortna, sökkur fold í mar, hverfa af himni heidar stjornur.Geisar eimi og aldurnari, leikur hár hiti viõ himin sjálfan." Join the community of eclipse seekers at icelandeclipse.com!#IcelandEclipse2026 Follow Us:Instagram: @icelandeclipseX: @IcelandEclipseTikTok: @icelandeclipseFacebook: @IcelandEclipse