Búðardalur
Kleppjárnsreykir í Borgarfirði
Kleppjárnsreykir í Borgarfirði er skóla- og gróðurhúsaþorp sem byggir á gömlum merg. Ræktun er mikil í þorpinu enda jarðhiti mikill en á Kleppjárnsreykjum er annar vatnsmesti hver í Borgarfirði. Þar er oft hægt að kaupa grænmeti og ber beint frá ræktendum.
Á Kleppjárnsreykjum er ein af starfsstöðvum Grunnskóla Borgarfjarðar og þar er leikskóli. Um langahríð var þar læknissetur.
Þar er einnig veitingasala og tjaldstæði.