Melahverfi í Hvalfjarðarsveit
Yngsti þéttbýliskjarninn á Vesturlandi er Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Fyrstu húsin voru byggð þar um 1980 en þá var svæðið kallað Hagamelur.
Skömmu eftir að Járnblendiverksmiðjan (Elkem) á Grundartanga tók til starfa árið 1979 byggðu nokkrir starfsmenn sé hús í Melahverfi þaðan sem stutt er að sækja vinnu því aðeins eru rúmir 4 km að Grundartanga. Enn þann dag í dag vinna flestir íbúar Melahverfis á Grundartangasvæðinu.
Stjórnsýsluhús Hvalfjarðarsveitar er í Melahverfi og einnig eini leikskólinn sveitarinnar, Skýjaborg. Grunnskólinn er að Leirá og útisundlaug að Hlöðum þar sem einnig er félagsheimili.