Kirkjufell
Kirkjufell – eitt af einkennum Vesturlands
"Eins og að stíga inn í listaverk – Kirkjufell býr yfir formfegurð, náttúrutöfrum og dulmagnaðri birtu. Þetta er staður sem þú vilt sjá og upplifa".
Kirkjufell rís tilkomumikið, 463 metra hátt, úr sjó við Grundarfjörð á Snæfellsnesi. Jarðlög fjallsins eru einstök, mjög sýnileg og geyma mikilvægar upplýsingar um jarðfræði svæðisins á jökultíma. Þetta fjall, sem stendur eitt og sér eins og útvörður við Breiðafjörð, er eitt þekktasta og mest ljósmyndaða fjall Íslands og hefur prýtt lista yfir 10 fallegust fjöll heims.
Við rætur fjallsins rennur Kirkjufellsfoss sem hefur orðið mjög vinsæll sem forgrunnur í myndatöku við Kirkjufellið. Á sumrin býr litadýrð sólarlagsins til ógleymanlegar senur þegar sólin tyllir sér á hafflötinn við Kirkjufellið og á veturna dansa norðurljósin oft yfir fjallið og speglast í haffletinum. Staðurinn býður því upp á stórkostlega ljósmyndaupplifun allt árið.
Lögun fjallsins er sérstök og formfögur – og hefur í gegnum tíðina kallað fram ýmis heiti á fjallið. Danskir sjómenn kölluðu það áður Sukkertoppen („sykurtoppurinn“) og í gömlum íslenskum heimildum er það nefnt Firðafjall. Kirkjufell hlaut einnig heimsathygli í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones, þar sem fjallið birtist sem “Arrowhead Mountain” (Örvaroddsfjall) og gegndi táknrænu hlutverki í baráttunni við hina dauðu norðan við Vegginn.
Þó að fjallið sé fagurt og heillandi er ganga upp Kirkjufell mjög krefjandi og hættuleg, með bröttum hlíðum sem oft eru mjög hálar og háum þverhnýptum klettabeltum. Aðeins vant fjallgöngufólk með viðeigandi öryggisbúnað og leiðsögn staðkunnugra ættu að reyna að klífa fjallið. Á veturna er uppganga á fjallið bönnuð. Mörg slys og nokkur banaslys hafa orðið þegar óvanir og vanbúnir aðilar hafa vanmetið aðstæður og lagt til uppgöngu á Kirkjufellið.
Njóttu fjallsins frá öruggum sjónarhóli – það er mjög áhrifamikið að horfa á það og þarf ekki að ganga á það.