Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Daníelslundur gönguleið Gönguleið

Daníelslundur var fyrsti skógurinn sem opnaður var sem opinn skógur árið 2002. Gönguleiðir um skóginn eru fjölmargar og fjölbreyttar.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°39.5119 W021°42.6807
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
  • Skiltuð án annarra merkinga - merkt leið með skiltum sem vísa leið
  • Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Trjákurl
  • Gras
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Í skóginum eru góðir göngustígar, rjóður með bekkjum og borðum ásamt grilli. Mikilvægt er að göngustígum sé fylgt, viðkvæmum gróðri sé hlíft og að gestir hirði rusl eftir sig.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Daníelslundur er í hjarta Borgarfjarðarhéraðs. Hér einkennist landslagið af klapparásum og holtum með mýrarsundum á milli. Ásarnir teygja sig frá mynni inndala niður á flatlendi Hvítár og Borgarfjarðar. Víðfeðmir birkiskógar og kjarr er ríkjandi og hafa án efa átt þátt í vinsældum svæðisins en á þessum slóðum eru ein stærstu sumarhúsahverfi landsins.